Erlent

Boko Haram að samningaborðinu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Mannrán Boko Haram hafa skotið heimsbyggðinni skelk í bringu.
Mannrán Boko Haram hafa skotið heimsbyggðinni skelk í bringu. Vísir/AFP
Nígerísk stjórnvöld og Rauði krossinn hafa átt í viðræðum við hryðjuverkasamtökin Boko Haram um að skólastelpurnar 200 sem rænt var í apríl á þessu ári verði leystar úr haldi. Þetta staðfestir einn meðlimur samninganefndarinnar í samtali við CNN.

Sendinefndir stjórnvalda og hjálparsamtakana áttu fjóra fundi um miðjan ágústmánuð með tveimur meðlimum Boko Haram í höfuðborg Nígeríu, Abuja.

Talið að er að samkomulagið sem rætt var á fundunum hafi falið í sér skipti á stelpunum 200 og 30 meðlimum hryðjuverkasamtakana  sem hafa verið í haldi nígerískara stjórnvalda. Boko Haram lagði fram lista með nöfnum mannanna sem þeir vildu fá úr haldi sem ýmist sitja í fangelsi eða bíða eftir að mál þeirra verði tekin fyrir dómstóla.

„Talsmenn Boko Haram sannfærðu samninganefndir Rauða krossins og stjórnvalda um að stelpunum hafi ekki verið nauðgað, þær ekki seldar sem kynlífsþrælar eða að þær hafi verið beittar nokkru kynferðislegu áreiti,“ segir heimildarmaður CNN sem vildi ekki láta nafn síns getið.

Málið á rætur sínar að rekja til aðgerða Boko Haram í apríl á þessu ári þegar meðlimir samtakana rændu alls 276 stúlkum úr heimavistarskóla í Chibok í norðausturhluta Nigeríu. Margar náðu að strjúka úr haldi ræningja sinna en rúmlega 200 er enn saknað.

Boko Haram segist reiðubúið til að skiptanna en þó hafi viðræðurnar til þessa strandað á fjölda stúlkna sem fengjust fyrir hvern hryðjuverkamann. Samtökin hafa farið fram á jöfn skipti, 30 stúlkur fyrir hryðjuverkamennina 30, en nígerísk stjórnvöld hafa ekki getað fallist á það. Þá hafi samtökin einnig viljað hafa bein samskipti við fangana sem ekki var talið ráðlegt að fallast á.

Boko Haram þýðir „Vestræn menntun er synd“ á haúsatungumáli innfæddra. Markmið samtakanna er að eigin sögn að koma á og framfylgja strangari sjaríalögum í Nígeríu.


Tengdar fréttir

Skotárás á kennaraskóla í Nígeríu

Talið er að 13 séu látnir og 34 særðir. Ekki er víst hver er ábyrgur fyrir árásinni en líklegt er að Boko Haram standi á bak við hana.

Mannskæðar árásir í Nígeríu

Að minnsta kosti 10 manns hafa fallið í árásum vígamanna, sem talið er að séu liðsmenn öfgasamtakanna Boko Haram, á nokkur þorp í norðausturhluta Nígeríu í dag.

Malala heldur til Nígeríu

„Þessar stelpur eru eins og systur mínar og ég ætla að tala þeirra máli þar til þeim verður sleppt.“

Rændu tvöhundruð skólastúlkum í Nígeríu

Allt að 200 ungum stúlkum í skóla í Borno héraði í Nígeríu hefur verið rænt. Á heimasíðu breska ríkisútvarspins segir frá því að hópur vopnaðra manna hafi ruðst inn í skólann að næturlagi og skipað stúlkunum upp á vörubílspalla.

Segist ætla að selja stúlkurnar

Nígerísku samtökin Boko Haram segjast bera ábyrgð á hvarfi 223 skólast´lukna sem saknað hefur verið í um þrjár vikur.

Þrýstingur eykst um að friður komist á

Árásir Ísraelshers hafa haldið áfram úr lofti, frá sjó og á landi og Hamas heldur áfram hernaði sínum í gegnum jarðgöng og með loftskeytum. Amnesty International krefst rannsóknar af gjörðum beggja stríðsaðila og segja að margt bendi til þess að stríðsgæpir hafi verið framdir.

Biður Obama að hjálpa Nígeríu

Forseti Nígeríu, Goodluck Jonathan, hefur biðlað til Baracks Obama Bandaríkjaforseta að aðstoða landið í þeim vanda sem það stendur nú frammi fyrir. Herskáir íslamistar hafa farið um með miklu ofbeldi upp á síðkastið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×