Lífið

Bogmaðurinn: Heillaðu aðra með orkunni þinni

Það er mjög mikilvægt að segja satt og vera einlægur og hreinskilinn.
Það er mjög mikilvægt að segja satt og vera einlægur og hreinskilinn.
Elsku kjarnorku Bogmaðurinn minn. Þú átt það til að vera of tilfinningamikill og hafa svo miklar áhyggjur, svona eins og það sé að komast upp um þig. Líða aldrei eins og þú sért að gera hlutina nógu vel. En þú mátt vera aðeins montnari því mont og stolt eru systur.

Það er mjög mikilvægt að segja satt og vera einlægur og hreinskilinn því þá fer kvíðinn. Það tímabil sem þú ert að fara í, hjartað mitt, er tímabil þar sem þú þarft að klára hlutina. Þú þarft að tala við þá sem geta breytt lífi þínu og þú þarft að semja við alla í kringum þig og ganga frá lausum endum. Það er nefnilega þannig stundum að þú ætlar þér of mikið og heldur stundum að lífið sé ýmist allt eða ekkert.

Lífið er á einhvern máta að gefa þér annað tækifæri og ef þú spáir í það í smá stund þá getur þú kveikt á hundrað kertum með bara einu kerti. Það er mjög mikilvægt að vera ánægður með núverandi stöðu og þann árangur sem þú hefur þegar náð, annars kemstu ekkert áfram.

Hjartans Bogmaðurinn minn. Það verða ekki allir sammála þér með margt sem þig langar að taka þér fyrir hendur svo þú þarft að fá fólk í lið með þér og mundu að rifrildi eru til einskis.

Í ástarmálum ættir þú að varast að vera með einhverjar björgunaraðgerðir á persónum sem hæfa þér alls ekki. Þú þarft að eiga maka sem þú lítur upp til og ert stoltur af. Þá fyrst blómstrar þú. Það verður brjálað að gera hjá þér svo notaðu þessa orku til að heilla aðra því að það er það sem þú getur. Svo ef þú ert þreyttur þá ertu að borða vitlaust og þarft að taka þig í gegn því næstu sex mánuðir munu breyta lífi þínu og senda þér áskoranir sem þú þarft að taka.

Mottó: Það eru mistökin sem gera mig að sterkri manneskju.

Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collecton, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Sigga Dögg kynfræðingur. 


Tengdar fréttir

Vogin: Allt á sér ástæðu

Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér.

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Meyjan: Taktu áhættu

Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×