Lífið

Bogfimi eins og þú hefur aldrei séð hana áður

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Lars er ekkert lamb að leika sér við.
Lars er ekkert lamb að leika sér við. vísir/getty
Lars Andersen er Dani sem eflaust ekki of margir kannast við. Og þó. Fyrir rúmum mánuði síðan setti hann myndband inn á Youtube þar sem hann sýnir hvernig bogamenn fyrri alda skutu af boga og það er töluvert frábrugðið því sem við höfum séð í kvikmyndum og þáttum nútímans. Yfir 28 milljón manns hafa horft á myndbandið.

Í stað þess að geyma örvarnar í örvamæli hefur Lars þær í hendinni sem hann dregur með og í stað þess að setja örvarnar vinstra megin við bogann er hann skýtur hefur hann þær hægra megin. Á þann veg nær hann að skjóta ótrúlega hratt og nákvæmt.

Í myndbandinu sést til að mynda þegar hann skýtur þremur örvum á aðeins 0.6 sekúndum og þegar hann grípur ör sem skotið er að honum. Einnig nær hann að kljúfa ör sem skotið er í átt til hans með ör sem hann skýtur á móti. Þetta ótrúlega myndband má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×