Innlent

Boðar nýja stefnu í fíkniefnamálum á opnum fundi í HÍ

Heimir Már Pétursson skrifar
Ruth Dreifuss flytur fyrirlestur sem öllum er opinn í stofu 101 í Odda Háskóla Íslands klukkan 13 í dag.
Ruth Dreifuss flytur fyrirlestur sem öllum er opinn í stofu 101 í Odda Háskóla Íslands klukkan 13 í dag. Vísir/AFP
Ruth Dreifuss, fyrrverandi innanríkisráðherra og forseti Sviss, fundaði í gær með ráðherrum og háttsettum embættismönnum um stefnuna í fíkniefnamálum. Hún segir stríðið gegn fíkniefnum algerlega tapað og það valdi meiri skaða í samfélögum heimsins en fíkniefnin sjálf.

Ruth Dreifuss er í hópi rúmlega tuttugu sendiboða alþjóðlegrar hugveitu sem heitir Global Commission on Drug Policy, eða alþjóðanefnd um stefnuna í fíkniefnamálum. En í nefndinni sitja fjölmargir meðal annars Kofi Annan fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fyrrverandi þjóðarleiðtogar, ráðherrar og leiðtogar í atvinnulífi eins og Richard Branson, eigandi Virgin.

Snarrótin, samtök um borgaraleg réttindi, aðstoðar nefndina vegna komu Dreifuss til Íslands, en hún kemur hingað að frumkvæði nefndarinnar. Reyndar átti Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi varnarmála- og utanríkisráðherra Noregs, að koma með Dreifuss en hann forfallaðist.

Pétur Þorsteinsson formaður Snarrótarinar segir heimsókn Dreifuss hafa heppanst vel, en hún byrjaði gærdaginn á fundi með Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis í gærmorgun.

„Í gær hitti hún einnig Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Ólöfu Nordal innanríkisráðherra ásamt fjölda embættismanna úr ráðuneytunum auk háttsettra embættismanna í utanríkisráðuneytinu. Síðast en ekki síst var hún heiðursgestur á fyrstu opnu samkomu nýstofnaðra samtaka um skaðaminnkun, Frú Laufeyjar,“ segir Pétur.

Dreifuss byrjaði reyndar heimsókn sína með því að mæta í ítarlegt viðtal við Heimi Má í Íslandi í dag á fimmtudag en það viðtal má sjá að neðan.

Þegar Dreifuss varð innanríkisráðherra Sviss árið 1993 blasti við henni mikill fíkniefnavandi í mörgum helstu borgum landsins og beitti hún sér fyrir byltingarkenndum breytingum á stefnunni í þessum málum með samvinnu við neytendurna sjálfa, lögregluna, heilbrigðisyfirvöld og félagsþjónustu landsins.

Hún flytur fyrirlestur sem öllum er opinn í stofu 101 í Odda Háskóla Íslands klukkan 13 í dag.

„Eftir fyrirlesturinn verður pallborð þar sem með Dreifuss verða Dr. Helgi Gunnlaugsson, Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir og Borgar Þór Einarsson, formaður sérstakrar nefndar heilbrigðisráðherra um endurskoðun á stefnunni í fíkniefnamálum,“ segir Pétur Þorsteinsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×