Tónlist

Bobby Shmurda handtekinn

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Bobby Shmurda sló í gegn með laginu Hott Nigga í ár.
Bobby Shmurda sló í gegn með laginu Hott Nigga í ár. nordicphotos/getty
Hinn 20 ára gamli rappari Bobby Shmurda frá Brooklyn var handtekinn á miðvikudaginn ásamt fjórtán öðrum sem sumir hverjir eru meðlimir rapphóps hans GS9.

Handtakan var liður í rannsókn lögreglu á sölu vímuefna og morðum sem tengjast gengjastarfsemi en sextán vopn fundust í bíl Shmurda.

Rapparinn, sem heitir réttu nafni Ackquille Pollard og sló í gegn í ár með laginu Hott Nigga, var handtekinn stuttu eftir að hann yfirgaf hljóðver í Manhattan.

GS9-meðlimurinn Rowdy Rebel var einnig handtekinn inni í hljóðverinu þar sem lögreglan lagði hald á skammbyssur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×