Lífið

Bobbi Kristina Brown vöknuð úr dái

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bobbi Kristina Brown
Bobbi Kristina Brown vísir/getty
Bobbi Kristina Brown, dóttir Whitney Houston og Bobby Brown, er vöknuð úr dái. Hún hafði verið í dái frá 31. janúar síðastliðinn eftir að hún fannst meðvitundarlaus í baðkari.

Frænka hennar, Tina Brown, greindi frá tíðindunum á Facebook síðu sinni en um svipað leiti hafði Bobbi Brown sagt frá þessu á tónleikum í Texas við mikinn fögnuð tónleikagesta.

Ekki hefur enn verið greint frá því hver líðan Bobbi Kristina er eftir dáið en aðstandandi biðlar til fólks að halda áfram að biðja fyrir henni nú þegar hún er laus við öll tæki. Enn sé langur vegur eftir til fulls bata.

Please don't stop praying for Bobbi Kris even though she is off life support and she has woke up. We are decreeing life...

Posted by Keliah Fell on Sunday, 19 April 2015

Tengdar fréttir

Haldið sofandi á spítala

Dóttir Whitney Houston, Bobbi Kristina Brown, er á batavegi að sögn frænda hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×