Bílar

BMW 5 Series kynntur hjá BL

Finnur Thorlacius skrifar
BMW 5 Series.
BMW 5 Series.
Fimm-línan frá BMW hefur frá upphafi verið ein vinsælasta og mest selda fjölskyldu- og viðskiptalúxusbifreið veraldar, allt frá því að BMW 528 kom fyrst fram árið 1972. Á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16, kynnir BL sjöundu kynslóð 5 Series Sedan, sem aldrei hefur verið glæsilegri og jafn vel útbúin og nú.

Bíllinn var fyrst kynntur á bílasýningum seint á síðasta ári og fóru fyrstu bílarnir á Evrópumarkað núna í febrúar. Undanfarna mánuði hafa þó bílablaðamenn um allan heim haft bíla til reynslu og er óhætt að segja að ánægja þeirra hafi aldrei verið meiri en nú eins og umsagnir þeirra í fjölmiðlum bera vott um.

Hvort sem litið er til blaða, tímarita eða myndbanda á vefnum virðast blaðamenn sammála um að hinn nýi BMW 5 Series skjóti keppnautum sínum ref fyrir rass í samkeppni um hylli aðdáenda og kaupenda lúxusbíla. Þannig sagði t.d. Auto Motor und Sport eftir úttekt blaðamanna sinna á bílnum og skoðanakönnun meðal lesenda blaðsins að „svona liti sigurvegari út“. Blaðið kaus hann þann besta í sínum flokki í lok síðasta árs.

Alls býður BL upp átta mismunandi útgáfur af BMW 5 Series eins og sjá má í verðlista á vefnum. Á kynningunni við Sævarhöfða á morgun verður sérvalin útgáfa af 520d Sedan tilbúin til reynsluaksturs fyrir áhugasama gesti, en bílinn setti BMW í Þýskalandi saman og sendi til landsins. Reynsluakstursbíllinn er búinn öllu því besta sem BMW býður upp á í þessum flokki.

Í sýningarsalnum verður svo fjórhjóladrifna útgáfan 530d Xdrive til sýnis þar sem gestir geta mátað sig við farþegarýmið og ráðfært sig við söluráðgjafa. Bíllinn í salnum er með átta gíra Steptronic sjálfskiptingu við þriggja lítra 265 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins um 5 lítrum að meðaltali á hverja 100 ekna km. Í þeirri útfærslu kostar hann 9.690 þúsundir króna hjá BL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×