Íslenski boltinn

Blikastúlkur í úrslit Lengjubikarsins

Rakel Hönnudóttir hafði betur gegn sínum gömlu félögum í dag.
Rakel Hönnudóttir hafði betur gegn sínum gömlu félögum í dag. vísir/vallsy
Það verða Breiðablik og Stjarnan sem mætast í úrslitum Lengjubikars kvenna í ár. Blikastúlkur lögðu Þór/KA, 2-0, í kvöld og tryggðu sér um leið farseðilinn í úrslitaleikinn.

Hildur Sif Hauksdóttir og Hlín Gunnlaugsdóttir skoruðu fyrir Blika í fyrri hálfleik og það dugði til.

Úrslitaleikurinn fer fram í Egilshöll á sunnudag.

Upplýsingar um markaskorara: urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×