Innlent

Blíðskaparveður í höfuðborginni næstu daga

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Vísir/IMO
Blíðviðri er í Reykjavík í dag en hiti hefur mest mælst um 18 gráður.

Samkvæmt veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands verður bjartviðri á höfuðborgarvæðinu næstu daga. Búist er við að hlýjasti dagurinn verði á morgun, miðvikudag, og fari svo kólnandi. Hitaspá fyrir landið allt á morgun er 9-22 stig og búist er við að hlýjast verði suðvestanlands síðdegis.

Þrátt fyrir að kólna eigi í veðri eftir það er gert ráð fyrir allt að 15-16 stiga hita á höfuðborgarsvæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×