Innlent

Blessun að vera laus við umfangsmikinn bankageira

Atli Ísleifsson skrifar
 „Við leyfðum bönkunum að verða gjaldþrota. Við björguðum þeim ekki, dældum ekki inn opinberu fé til að bjarga bönkunum,“ sagði forsetinn.
„Við leyfðum bönkunum að verða gjaldþrota. Við björguðum þeim ekki, dældum ekki inn opinberu fé til að bjarga bönkunum,“ sagði forsetinn. Vísir/Valli
„Nú erum við helsta dæmið um land sem hefur náð sér,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti á Cl­int­on Heimsþinginu, Cl­int­on Global Initiati­ve, sem hófst í New York á sunnudag og lýkur á morgun.

Í frétt Dagens Industri kemur fram að að forsetinn hafi sagt fundargestum frá þeim efnahagserfiðleikum sem Ísland hafi gengið í gegnum og ráðlagt öðrum að óttast ekki að gera mistök þegar leiða er leitað til að vinna sig út úr efnahagsvanda. „Hér erum við, sex árum síðar,“ sagði forsetinn stoltur þegar hann bauð fólk velkomið til pallborðsumræðna á fundinum.

Í greininni segir að þrátt fyrir takmörkuð völd embættisins, þá hafi það ekki komið í veg fyrir að forsetinn ákveði að tala fyrir nokkrum þeim úrræðum sem hann telji að hafi einna helst orsakað að Ísland hafi náð sér út úr kreppunni. „Þú verður að hafa vilja til að fara gegn ráðandi hugmyndum um hvað krefst til að ná árangri.“

Ólafur Ragnar sagði þessa „eigin leið“ Íslands hafi birst í því að Ísland hafi ákveðið að bjarga ekki bönkunum. „Við leyfðum bönkunum að verða gjaldþrota. Við björguðum þeim ekki, dældum ekki inn opinberu fé til að bjarga bönkunum.“

Í grein Dagens Industri kemur fram að forsetinn segi þessa leið hafa orðið fyrir valinu þrátt fyrir varnaðarorð og ráðleggingar sérfræðinga og annarra landa. „Í dag mælist atvinnuleysið milli 4 og 5 prósent og hagvöxtur um 3 prósent,“ segir forsetinn og skýtur svo á bankageirann. „Það hefur nefnilega verið blessun að þessi stóri bankageiri sé horfinn. Sú mikla sköpunargáfa sem var áður læst inni í húsum fjármálafyrirtækja hefur leitað annað þar sem hún hefur gert meira gagn.“

For­setinn var meðal frum­mæl­enda í einni mál­stof­u þingsins þar sem fjallað er um nýtingu hreinnar orku í þágu sjálfbærni og efnahagsþróunar og um hvernig áföll og kreppur geta leitt til nýsköpunar og framfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×