Glamour

Bleikur október beint af tískupöllunum

Ritstjórn skrifar
Myndir/Getty
Nú þegar tískuvikurnar fyrir vorið 2017 eru búnar er augljóst að bleiki liturinn verður áberandi á næsta ári. Það kemur sér einstaklega vel þennan mánuðinn enda er hann tileinkaður litnum.

Eftir nákvæmlega viku, eða 14.október, er bleiki dagurinn. Þá er fólk hvatt til þess að klæðast bleiku fötunum sínum. Það er því ekki seinna vænna að leita sér af innblæstri og við tókum saman nokkur af okkar uppáhalds bleiku dressum frá tískuvikunum. 

Við hvetjum fólk einnig til þess að kaupa bleiku slaufuna en hún fæst í öllum helstu verslunum. Með því að kaupa bleiku slaufuna styrkir þú endurnýjun á tækjum til skipulagðrar leitar að brjóstakrabbameini. 

Valentino
Bottega Venetta
Michael Kors
Fendi
Gucci





×