Lífið

Bleikja með stökku roði sem klikkar ekki

Það besta við þennan rétt er stökka roðið að sögn Önnu.
Það besta við þennan rétt er stökka roðið að sögn Önnu. Mynd/Anna Björk
Matarbloggarinn Anna Björk reiðir þennan ljúffenga rétt gjarnan fram þegar hún fær gesti í mat enda er hann einfaldur í framkvæmd og getur varla klikkað.

„Það sem mér finnst svo gott við bleikjuna er roðið, sem verður stökkt og dásamlegt þegar það er grillað. Blómkálsmaukið er flauelsmjúkt, smjörið er kryddað með oregano og hvítlauks- og bals­amikedikið setur Miðjarðarhafsstemningu á diskinn. Rétturinn er bragðmikill og með skemmtilegri áferð. Best af öllu er að hann er léttur og fer vel í mann,“ segir Anna Björk Eðvarðsdóttir sem hvetur lesendur til að borða roðið. „Það er dásamlega gott, eins og besta pura.“

Bleikja með blómkálsmauki og oreganosmjöri

Fyrir fjóra

4 x 200 g bleikjuflök, með roði

Sjávarsalt

Nýmalaður svartur pipar

Blómkálsmaukið:

1 kg blómkál, saxað

2 ½ dl matreiðslurjómi

7 ½ dl kjúklingasoð

25 gr. smjör í bitum

Sjávarsalt

Oregano-smjörið:

80 gr. smjör ¼ bolli fersk oreganolauf

1 hvítlauksrif, marið

1 msk. gott Balsamik­edik (ekki gljái)

Aðferð:

Blómkálið, rjóminn og soðið er sett í meðalstóran pott og suðan látin koma upp. Þá er hitinn lækkaður og blómkálið soðið í 20 mín. Soðinu er hellt af, en um það bil 2-3 msk. af því geymt.

Kálið, 25 g af smjöri og soðið er sett í matvinnsluvél og maukað alveg flauelsmjúkt. Smakkað til með salti.

Matarbloggarinn Anna Björk. Vísir/Anton Brink
Roðið á bleikjunni er skafið með bakinu á stórum hníf. Grillið í ofninum er hitað. Bleikjuflökin eru lögð á ofnplötu með bökunarpappír, roðið niður. Bleikjan er söltuð og pipruð.

Platan er sett eins hátt í ofninn undir grillið og hægt er og fiskurinn grillaður í ca. 1-2 mínútur. Þá er bleikjunni snúið við, vel af sjávarsalti stráð á roðið og platan sett aftur á sama stað í ofninn og fiskurinn grillaður áfram þar til roðið byrjar að bólgna upp og verður gyllt og alveg stökkt. Þetta tekur ca. 3-5 mín.

Hvítlauksrifið er marið og sett í litla skál með blasamik­edikinu. Smjörið er brætt í potti og oreganolaufið sett út í og steikt á meðalhita þar til það fer að gefa góða lykt. Þá er potturinn tekinn af hitanum og edikið með hvítlauknum er hrært saman við smjörið, saltað ef þarf.

Þegar bleikjuflökin eru tilbúin er blómkálsmaukið sett á diskinn og flakið lagt ofan á með roðið upp. Krydduðu smjörinu er hellt yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×