Matur

Bleikja með bankabyggi að hætti Eyþórs

Eyþór Rúnarsson skrifar
Vísir/Stöð 2

Grilluð bleikjuflök  með kryddjurtamauki og byggsalati með blómkáli og lárperu

Uppskrift fyrir 4

Bleikja

4 stk. bleikjuflök 

Ólífuolía 

1 stk. sítróna 

Sjávarsalt 

Svartur pipar úr kvörn 

1 stk. sítróna 

Grillklemma

Penslið flökin með ólífuolíu og kryddið þau vel með salti og pipar. Takið 1/3 af kryddjurtamaukinu og smyrjið yfir flökin. Spreyið grillklemmuna með formspreyi eða penslið hana með ólífuolíu. Leggið flökin í grillklemmuna og setjið á sjóðandi heitt grillið og grillið í um 4 mín.

Berið fram með sítrónubáti.

Kryddjurtamauk

½ bréf mynta 

½ bréf steinselja 

½ hvítlauksrif 

½ rauður chili 

½ sítróna (börkurinn og safinn)

2 msk. kapers

100 ml ólífuolía 

Setjið allt saman í mortél eða matvinnsluvél og maukið saman þar til blandan er farin að líkjast pestói. 



Bankabyggssalat með blómkáli og lárperu 

300 g soðið bankabygg 

½ agúrka 

1 stk. fínt saxaður skallotlaukur 

1 stk. lárpera (avokadó)

150 g rifið blómkál 

Börkur og safi af hálfri sítrónu

1 dolla sýrður rjómi 18% 

2 msk. fínt skorið dill

Maldon-salt 

Hvítur pipar úr kvörn 



Fjarlægið kjarnann úr agúrkunni og skerið í fallega bita. Takið steininn úr lárperunni og skafið innan úr henni. Skrælið og skerið lárperuna í fallega bita. Rífið blómkálið niður með rifjárni.

Blandið öllu saman og smakkið til með saltinu og piparnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×