Fótbolti

Blatter reyndi ítrekað að tengja sig við Nelson Mandela

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sepp Blatter og Nelson Mandela.
Sepp Blatter og Nelson Mandela. Vísir/EPA
Sepp Blatter, forseti FIFA, notaði athyglisverða aðferð til að verja sig á blaðamannafundi í höfuðstöðvum FIFA í dag en þar ræddi hann um átta ára bannið sem hann og Michel Platini voru dæmdir í fyrr í dag.

Blatter reyndi aftur og aftur að tengja sig við Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, á þessum sögulega blaðamannfundi.  Nelson Mandela er einn virtasti stjórnmálamaður heimssögunnar en hann lést í desember árið 2013.

Blatter nefndi það í upphafi blaðamannafundarins að síðast þegar hann hélt blaðammafund í þessum sal hjá FIFA þá var hann þar með Nelson Mandela að kynna þau lönd sem sóttust eftir því að halda HM 2010.

HM 2010 fór á endanum til Suður-Afríku og var þetta fyrsta heimsmeistaramótið sem var haldið í Afríku.

„Herra Nelson Mandela var hérna með mér þennan dag og hann var þá að tala um manngæska," sagði Blatter í upphafi blaðamannafundarins. Blatter telur þessa herferð gegn sér vera mjög ósanngjarna því hann sé maður sem hafi aldrei tekið við pening sem hann hafi ekki unnið fyrir.

„Það á að bera virðingu fyrir öllu fólki og ég segi það af því að slagorðið fyrir HM 2010 var mannúð og það var búið til af hinum mikla mannvini Herra Mandela," sagði Blatter.

Sepp Blatter talaði líka um það að ef Bandaríkin hefðu fengið HM 2022 en ekki Katar þá stæði hann ekki í þessum sporum. Aftur kom Nelson Mandela við sögu þegar hann fór að tala um HM 2022.

Blatter sagði þá frá samskiptum sínum við Nelson Mandela um það að nú þegar Afríka hafi fengið heimsmeistaramótið í fyrsta sinn þá ætti Arabíuheimurinn líka að fá að halda HM.

Honum tókst því að koma því fram að hugmyndin að því að fara með HM til Arabíulands eins og Katar hafi upphaflega komið frá Mandela sjálfum. Blatter hafi því verið að fylgja ósk Herra Mandela en flestir eru á því að Katarmenn hafi keypt atkvæðin sín.


Tengdar fréttir

Sepp Blatter og Michel Platini dæmdir í átta ára bann

Sepp Blatter, forseti FIFA, og Michel Platini, forseti UEFA, hafa báðir verið dæmdir í átta ára bann frá knattspyrnu en siðanefnd Alþjóðaknattspyrnusambandsins hefur lokið rannsókn á mútumáli tengdum þeim báðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×