Fótbolti

Blatter: Ég get ekki fylgst með öllum allan daginn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Verður Blatter áfram forseti?
Verður Blatter áfram forseti? vísir/getty
„Þessum aðgerðum ákveðinna einstaklinga sem færa skömm og niðurlægingu yfir fótboltan neyða okkur til að breyta hlutunum,“ sagði Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, í ræðu sinni á opnunarhátíð ársþings sambandsins í Zürich í dag.

Öll spjót standa að Blatter eftir að háttsettir embættismenn innan FIFA voru handteknir í fyrrinótt vegna spillingar innan sambandsins.

Sjá einnig:Geir kallar eftir breytingum innan FIFA: Þetta er óþolandi staða

„Margir segja að ég ábyrgur fyrir þessu en ég get ekki fylgst með öllum allan daginn. Ef fólk vill gera eitthvað rangt gerir það svo og reynir að fela slóð sína,“ sagði Blatter.

„Ég mun ekki leyfa aðgerðum nokkurra manna að eyðileggja allt fyrir þeim stóra meirihluta innan sambandsins sem eru heiðarlegir og leggja mikla vinnu á sig fyrir fótboltann.“

Ali bin Al-Hussein ætlar upp á móti Blatter.vísir/getty
Blatter viðurkennir að handtökurnar og ákærurnar séu mikill skellur fyrir sambandið.

Á morgun eru svo forsetakosningar þar sem Blatter fær mótframboð frá jórdanska prinsinum Ali bin Al-Hussein.

„Næstu mánuðir verða ekki auðveldir fyrir FIFA. Ég er viss um að fleiri slæmar fréttir munu fylgja en það er nauðsynlegt að byrja að endurvekja traust á okkar sambandi. Látum þetta verða vendipunktinn,“ sagði Blatter.

Sjá einnig:Platini útilokar ekki að UEFA-löndin sniðgangi HM verði Blatter endurkjörinn

„Allir sem tengjast fótboltanum eiga meira skilið. Á morgun á þinginu fáum við tækifæri til að byrja vinna aftur traust fólksins.“

„Það gerum við með ákvörðunum sem við tökum á morgun og með hegðun okkar sem einstaklingar,“ sagði Blatter.

„Við elskum þennan leik og það er ekki vegna græðgi eða valdasýki heldur vegna ástar okkar á leiknum.“

„Það er ekkert pláss fyrir spillingu hjá FIFA,“ sagði Sepp Blatter.


Tengdar fréttir

Meint mútuþægni hjá toppum FIFA nær aftur til 1990

Bandarísk yfirvöld ákæra níu yfirmenn FIFA. Þeirra á meðal er varaforseti FIFA, Jeffrey Webb. Sepp Blatter, forseti FIFA, er ekki á meðal hinna ákærðu. Fjölmiðlafulltrúi FIFA segir sambandið fórnarlamb málsins.

Geir og félagar snúa baki við Sepp Blatter

Knattspyrnusamband Evrópu var eina álfusambandið sem vildi fresta forsetkosningum FIFA vegna handtakanna í Zurich í gær en aðildarlönd UEFA ætla samt sem áður að taka þátt í kosningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×