Fótbolti

Blatter: Ég fer til himnaríkis einn daginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sepp Blatter, forseti FIFA.
Sepp Blatter, forseti FIFA. Vísir/EPA
Sepp Blatter, forseti FIFA, hótar því að allir þeir sem bendla hann við FIFA-spillingarmálið eigi skilið að fara í fangelsi og hann er sannfærður að himnaríki bíði hans einhvern daginn. Þetta segir hinn 79 ára gamli Svisslendingur í viðtali við þýska blaðið Bunte.

Fjórtán háttsettir menn úr fótboltaheiminum voru ákærðir fyrir spillingu innan FIFA 27. maí síðastliðinn en málið er unnið af bandarískum saksóknörum sem eru að elta spillingarmál heil 24 ár aftur í tímann.

Það er búist við að Sepp Blatter láti af embætti forseta FIFA á sérstöku aukaþingi sem verður haldið á milli desember 2015 og mars 2016. Blatter hefur þó komið fram og lagt áherslu að hann hafi ekki sagt af sér í ræðu skömmu eftir endurkjörið þar sem flestir lásu það úr að hann væri að hætta. Það er því ekki öruggt að Blatter sé að fara að hætta.

„Ég hef hreina samvisku. Ef einhver sakar mig um spillingu þá mun ég spyrja hann um hvort að hann skilji hvað það orð þýðir. Allir sem saka mig um spillingu verða að sanna það því ég er ekki spilltur," sagði Sepp Blatter við blaðamann Bunte.

„Ef einhver ásakar mig um spillingu, af því að það er spilling innan FIFA,  þá get ég bara hrist höfuðið. Allir sem halda slíku fram eiga heima í fangelsi," sagði Blatter.

„Trúin hefur gefið mér styrk á þessum erfiðum tímum. Ég er trúaður og segi mínar bænir. Ég á gullkross sem Francis páfi blessaði. Ég trúi því að ég fari til himnaríkis einn daginn og ég trúi því ekki að það sé til helvíti. Ég er ekki sammála páfanum þar," sagði Blatter sem ætlar að skrópa á úrslitaleik HM kvenna sem fer fram í Kanada á sunnudaginn.


Tengdar fréttir

Ben Affleck undirbýr kvikmynd um FIFA skandalinn

Leikarinn Ben Affleck og leikstjórinn, Gavin O'Connor, eru um þessar mundir að undirbúa kvikmynd um FIFA-skandalinn sem átti sér stað fyrr á þessu ári. Vefmiðill í Hollywood greinir frá þessu.

Blatter skrópar á úrslitaleik HM kvenna

Sepp Blatter, forseti FIFA, ætlar að skrópa á úrslitaleik HM kvenna á sunnudaginn og ástæðurnar eru persónulegar samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×