Körfubolti

Blatt þiggur meistarahring frá Cleveland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David Blatt.
David Blatt. vísir/getty
Fyrrum þjálfari Clevelad Cavaliers, David Blatt, hefur þegið boð félagsins um að fá meistarahring þó svo hann hafi ekki verið þjálfari liðsins er það varð NBA-meistari.

„Cleveland bauð mér hring sem ég þáði því þeir buðu mér hringinn á mjög virðingaverðan hátt,“ sagði Blatt en hann var rekinn um mitt síðasta tímabil. Tyronn Lue fór svo með liðið alla leið.

„Félaginu fannst ég hafa lagt mitt af mörkum á þessu meistaratímabili. Þetta er ekki minn titill, ég skil það en mér finnst ég hafa lagt mitt af mörkum í þetta meistaralið. Ég tek því við hringum af auðmýkt því þetta var fallega boðið. Þeim fannst ég hafa unnið mér inn fyrir honum og því var ég kátur að þiggja hringinn.“

Blatt vann 83 leiki en tapaði 40 sem þjálfari Cleveland og kom þeim í úrslit 2015 er liðið tapaði gegn Golden State. Blatt þjálfar nú tyrkneska liðið Darussafaka Dogus.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×