Lífið

Blandaði einn „Justin Special“ fyrir Timberlake eftir ræktina

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Justin Timberlake var í sveittum ræktarfötum þegar Ingunn stillti sér upp með goðinu.
Justin Timberlake var í sveittum ræktarfötum þegar Ingunn stillti sér upp með goðinu. Mynd/Ingunn
„Ég var búinn að heyra sögur af því að fólkið sem vann á tónleikunum hans í Kórnum hafi ekki mátt tala við hann eða horfa í augun á honum og því kom það mér eiginlega á óvart hvað hann var ótrúlega almennilegur,“ segir Ingunn Hlín Friðriksdóttir sem varð þeirrar lukku aðnjótandi að fá mynd af sér með Justin Timberlake fyrir tónleika hans í Kópavogi á sunnudagskvöld.

Justin, sem gisti ásamt fylgdarliði sínu á Reyjavik Hilton Nordica, var nýstiginn út úr líkamsræktarstöð hótelsins þegar Ingunn rakst á hann, en hún er starfsmaður Nordica Spa sem staðsett er í húsinu.

Tónlistarmaðurinn var þar staddur ásamt einkaþjálfaranum sínum um klukkan 17 á laugardaginn og bað hann Ingunni sérstaklega um að setja ekki myndina á netið fyrr en eftir tónleikana, sem hún stóð að sjálfsögðu við.

„Það komu hópar af unglingstúlkum hingað alla helgina og ég þurfti alltaf að senda þær í burtu. „Stelpur, hann er ekki hérna og hann verður ekkert hérna um helgina,“ segir Ingunn en hún segir að Justin hafi þótt vænt um hvað hann fékk mikinn frið á hótelinu.

„Það var enginn að bögga hann. Hann tók um klukkustundarlanga æfingu í hótelræktinni og það truflaði hann enginn. „It‘s so nice and quiet here,“ sagði hann þegar ég spjallaði við hann. Það var mikið af eldra fólki í æfingasalnum og það gæti verið að það hafi ekki þekkt hann,“ segir Ingunn sem er mikill aðdáandi Timberlakes. Því hafi hún þurft að mana sig upp í spyrja poppstjörnuna um mynd.

Justin Timberlake var í essinu sínu á tónleikunum í Kórnum á sunnudag.Vísir/ANDRI MARÍNÓ
I'm all sweaty, is that okay?

„Hann tók mjög vel í það – sem ég held að sé ekkert algengt með stjörnur sem eru nýkomnar úr ræktinni í sveittum íþróttafötum,“ segir Ingunn og bætir við að þrátt fyrir að vera nýkominn af æfingu hafi hann bara lyktað mjög vel. „Hann spurði; „I‘m all sweaty, is that okay?“ áður en við tókum myndina og þá sprakk einkaþjálfarinn hans úr hlátri,“ segir Ingunn.

Ekki nóg með að hafa fengið mynd af sér með manninum sem fékk fimm prósent þjóðarinnar til að dansa og dilla sér á sunnudag afgreiddi Ingunn poppstjörnuna einng á boostbar heilsuræktarinnar.

„Ég þurfti að þýða próteinlistann fyrir sjeikana okkar fyrir hann enda allur á íslensku. Hann endaði svo á því að fá sama drykk og einkaþjálfarinn hans,“ segir Ingunn en drykkinn sem hún lagaði fyrir Justin var ekki að finna á listanum. „Í sjeiknum voru hrísmjólk, jarðaber, banani og jarðaberjaprótein sem Justin þótti mjög góður. Ætli við förum ekki að bjóða upp á „Justin Special“ núna í kjölfarið,“ bætir Ingunn við og hlær.

Ingunn lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á tónleikana hans á sunnudaginn. „Þeir voru auðvitað ekkert annað en æðislegir,“ segir hún og tekur þar í sama streng og gangrýnandi Vísis sem segir partí bandarísku poppstjörnuna hafa verið á heimsmælikvarða.


Tengdar fréttir

Justin ekki meðvitaður um tilvist Kópavogs

Varla hefur farið framhjá nokkrum að Justin Timberlake hélt tónleika á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þeir voru þó ekki í Reykjavík eins og bandaríski hjartaknúsarinn tönnlaðist á þær 100 mínútur sem hann tryllti lýðinn.

Sérstakur safabar fyrir Justin

Samkvæmt heimildum Vísis hefur fyrirtækið Joe & The Juice opnað safabar baksviðs á tónleikum Justin Timberlake.

Stemningin inni í Kórnum

Fjölmargir eru komnir inn í salinn þótt Gus Gus hefji ekki leik fyrr en klukkan 19:30.

Stærstu tónleikar sem haldnir hafa verið

Viðbúnaðar vegna tónleika stórstjörnunnar Justin Timberlake er sá mesti sem þekkist í kringum tónleika hér á landi og aðdáendur sem keyptu miða voru mættir snemma á tónleikastaðinn, sumir fimm klukkutímum áður en Timberlake stígur á svið.

Justin Timberlake algjörlega heillaður af íslenskum áhorfendum

Samkvæmt heimildum Vísis sagði söngvarinn við samstarfsfólk sitt að íslenskir áhorfendur væru einhverjir þeir bestu sem hann hefur séð. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi var rífandi stemning á tónleikum gærkvöldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×