Glamour

Blake Lively best klædd í Cannes

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Blake Lively hefur heldur betur stolið senunni á kvikmyndhátíðinni í Cannes þar sem hún hefur átt góða endurkomu á rauða dregilinn. 

Blake, sem á von á öðru barni sínu ásamt leikaranum Ryan Reynolds, hefur notið þess að klæða sig í hvert glæsidressið á fætur öðru á meðan hún kynnir kvikmyndina Café Society sem hún leikur í, en Woody Allen leikstýrir henni. (sjá stiklu neðst í fréttinni)

Hér er brot af flottustu dressum Blake frá Cannes. 

Í fallegum kjól frá Vivianne Westwood.
Í flottum þröngum kjól með götum.
Í himinblásum prinsessukjól frá Atelier Versace.
Í glæsilegri rauðri kápu frá Chanel.
Í gulu flaueli og Jimmy Choo skóm.
Svört kápa frá Salvatore Ferragamo með fjöðrum.
Eldrauður samfestingur frá Juan Carlos Obando.
Smart og sumarlegt frá Chanel.





×