Glamour

Blái Dior herinn

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Maria Grazia Chiuri sýndi sýna aðra fatalínu sína sem yfirhönnuður franska tískuhússins Dior fyrir helgina og sveik engan. Fyrri sýning Chiuri var með feminísku yfirbragði og þessi líka, enda við hæfi þar sem þetta er í fyrsta sinn sem kvenmaður stýrir skútunni hjá tískuhúsinu fræga. 

Guðdómlegir bláir tónar voru í aðalhlutverki á sýningunni en hönnuðurinn vill meina að blái liturinn sé sá eini sem á möguleikann á því að velta svarta litnum úr sessi sem vinsælasti litur dagsins í dag. 

Leðurkollurnar stálu svo senunni en í lok sýningar þegar fyrirsæturnar marseruðu inn pallinn við taktfasta tóna höfðu margir á orði það hér væri mættur hinn feminíski her Dior. Hér eru uppáhaldslúkk Glamour af pallinum. 

Það mun einhvern klæðast þessuri bláu dásemd á rauða dreglinum í nánustu framtíð.





×