Heilsa

Blæbrigði horsins

sigga dögg skrifar
Nú er tími til að kanna horið
Nú er tími til að kanna horið Vísir/Getty
Nú drýpur úr nefum landsmanna og það eru ekki bara börn sem geta fengið grænt hor en það foreldrar eru oft vanir að lesa í horsnýtt andlit barna sinna en gleyma sínum eigin.

Cleveland Clinic hefur tekið saman litaspjald af því hvað litur horsins þýðir fyrir líkamlega heilsu.

Best er að vera með glært hor en hvítt eða gult getur bent til sýkingar og/eða kvefs.

Grænt hor táknar bardaga ónæmiskerfisins við sýkinguna.

Bleikt eða rautt hor get ur verið afgangsblóð.

Brúnt hor eru líklega óhreinindi.

Svart hor, nú ferðu beinustu leið til læknis.

Cleveland Clinic hefur tekið sama útskýringu á blæbrigðum horsVísir/Skjáskot

Tengdar fréttir

Má borða hor?

Börn, bílstjórar, unglingar og fólki sem leiðist eða telur sig í einrúmi eiga það öll sameiginlegt að gæða sér á hori við og við, en er það skaðlegt eða jafnvel bara ljúffengt?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×