Stephen Dobbie fagnar marki sínu.
MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Blackpool tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili þegar náði 2-2 janftefli á útivelli á móti Birmingham í seinni leik liðanna í undanúrslitunum umspilsins í ensku b-deildinni. Blackpool komst í 2-0 og þar með í 3-0 samanlagt en Birmingham setti spennu í leikinn með því að jafna metin. Birmingham þurfti hinsvegar að skora tvö mörk til viðbótar en það tókst ekki og Blackpool komst áfram.
Blackpool mætir West Ham á Wembley 19. maí næstkomandi en sigurvegari leiksins fylgir Reading og Southampton upp í ensku úrvalsdeildina. Blackpool féll úr ensku úrvalsdeildinni síðasta vor eftir að hafa komist þangað í gegnum umspilið vorið 2010.
Stephen Dobbie kom Blackpool í 1-0 á lokamínútu fyrri hálfleiks en markið kom eftir hornspyrnu og misheppnaða hjólgestaspyrnu hjá Alex Baptiste. Matt Phillips bætti við öðru marki eftir aðeins þrjár mínútur í seinni hálfleik og fór með því langt með að gera út um einvígið.
Leikmenn Birmingham voru ekki hættir. Nikola Zigic minnkaði muninn á 64. mínútu en hann var greinilega rangstæður þegar hann fékk boltann frá Chris Burke í teignum.
Curtis Davies jafnaði síðan með þrumuskalla eftir hornspyrnu frá Jordon Mutch en Davies varð einmitt fyrir því óláni að skora sjálfsmark í fyrri leiknum.
Blackpool hélt út og fagnaði vel sæti í úrslitaleiknum á Wembley.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Miðjumaðurinn snjalli, Michael Carrick, segir að leikmenn Manchester United standi við bakið á Skotanum David Moyes sem mun taka við liðinu í sumar. Liðið var Englandsmeistari í ár undir stjórn Sir Al...
Meira
Manchester City og Manchester United mættust í stórkoslegum knattspyrnuleik á Etihad í Manchester í vetur. Leikurinn var sá besti á nýafstaðinni leiktíð að mati Sunnudagsmessunnar.
Meira
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan, mun taka ákvörðun um það í næstu viku hvort hann mun halda áfram með Wigan. Liðið féll úr úrvalsdeildinni fyrir skömmu. Martinez hefur verið sterklega orðaðu...
Meira
Ítölsku meistararnir í Juventus hafa viðurkennt að félagið hafi áhuga á því að kaupa Argentínumanninn Carlos Tevez sem leikur með Manchester City. Juventus ætlar að styrkja liðið í sumar í von um að n...
Meira
Kenwyne Jones hefur beðið liðsfélaga sinn hjá Stoke, Glenn Whelan, afsökunar eftir að hafa brotið framrúðuna á bíl Whelan. Forsaga málsins er sú að nokkrir hrekkjalómar í liði Stoke tóku sig til og vö...
Meira
David Moyes mætti í dag á Carrington æfingasvæðið hjá Manchester United. Moyes mun taka formlega við sem stjóri United þann 1. júlí næstkomandi en búast má við að hann og Sir Alex Ferguson muni vinna ...
Meira
Stjórnarformaður Everton, Bill Kenwright, segir að hann sé nálægt því að finna rétta manninn í að leysa David Moyes af hólmi sem tekur formlega við Manchester United í dag.
Meira
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur lofað því að opna veskið og styrkja liðið í sumar. Liðið tryggði sér fjórða sætið í ensku deildinni í gær með 0-1 sigri gegn Newcastle. Þar með leikur l...
Meira
Enski varnarmaðurinn Jamie Carragher lék í gær sinn síðasta leik á ferlinum þegar hann og félagar hans í Liverpool höfðu betur gegn Queens Park Rangers, 1-0, í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Meira
"Leikmenn sem hegða sér svona spila ekki undir minni stjórn. Með svona hegðun sjá leikmenn sjálfir um að mála sig út í horn," segir Paolo Di Canio knattspyrnustjóri Sunderland.
Meira
Enska úrvalsdeildin mun sakna ýmissa kunnulegra andlita á næstu leiktíð. Auk Sir Alex Ferguson, Jamie Carragher og Paul Scholes kvöddu þrír aðrir góðkunningjar knattspyrnuvöllinn.
Meira
"Ég hef oft sagt þeim hve frábærir þeir séu en undanfarna tvo mánuði hafa þeir verið stórkostlegir," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, og lofaði leikmenn sína eftir 1-0 sigurinn á Newcastle í dag.
Meira
Kanarífuglarnir frá Norwich gerðu sér lítið fyrir og unnu 3-2 sigur á andlausu liði Manchester City á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Meira
Leikmenn West Brom og Manchester United buðu til veislu á The Hawthorns í West Bromwich í dag. Lokatölurnar urðu 5-5 þar sem Romelu Lukaku stal senunni.
Meira
Tottenham lagði Sunderland 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Sigurinn dugði liðinu þó ekki til sætis í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð þar sem Arsenal stóð sína vakt gegn N...
Meira
Arsenal lagði Newcastle að velli 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Sigurinn tryggir liðinu 4. sæti deildarinnar og sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð.
Meira
Liverpool kvaddi einn sinn dáðasta son, Jamie Carragher, þegar liðið lagði QPR að velli 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Meira
Romelu Lukaku kom inn á sem varamaður og skoraði þrennu í ótrúlegu 5-5 jafntefli West Brom og Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Meira
Wayne Rooney missir af leik West Brom og Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Kona hans Coleen á von á öðru barni þeirra hjóna.
Meira
Sir Alex Ferguson stýrir Manchester United í síðasta og 1500. skiptið og Arsenal og Tottenham berjast um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni. Lokaumferðin fer fram í dag.
Meira