Matur

Bláberja- og bananabrauð - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Bláberja- og bananabrauð með kanilmulningi

3 þroskaðir bananar

1/3 bolli bráðið smjör

3/4 bolli sykur

1 egg

1 tsk vanilludropar

1 1/2 bolli hveiti

1 tsk matarsódi

1/4 tsk salt

3/4 bolli bláber, fersk eða frosin

Kanilmulningur

1/4 bolli hveiti

1/4 bolli sykur

3/4 tsk kanill

smá salt

2 msk kalt smjör



Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið form með smjöri. Maukið banana og blandið þeim saman við smjör, egg og vanilludropa. Blandið þurrefnum saman í annarri skál og blandið síðan bláberjunum saman við þá blöndu. Blandið þurrefnablöndunni saman við bananablönduna. Setjið deigið í formið og gerið síðan mulning. Hrærið hveiti, sykur, kanil og salt saman og blandið síðan smjörinu við þar til blandan verður að mulningi. Setjið mulninginn yfir brauðdeigið hér og þar. Bakið í 60 til 70 mínútur.

Fengið héðan.


Tengdar fréttir

Sweet chili - kjúklingasúpa með íslensku grænmeti

Kálmeti og gulrætur koma upp úr görðum landsmanna þessa dagana. Fólk fékk Oddrúnu Helgu Símonardóttur til að gefa lesendum uppskrift að rjúkandi kjúklingasúpu með íslensku grænmeti.

Auðveldir ostakökubitar

Bara fjögur hráefni – þetta millimálanasl gæti ekki verið einfaldara.

Hollar amerískar pönnukökur

Hollar og bragðgóðar amerískar pönnukökur sem einfalt er að búa til og tilvaldar í brönsinn um helgar eða á sparídögum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×