Bláar myndir

Fréttablaðið Aðsendar greinar 28. janúar 2012 06:00
Menning
Áslaug Jónsdóttir
rithöfundur og teiknari
Menning Áslaug Jónsdóttir rithöfundur og teiknari
Blár ís fyrir stráka: bannaður stelpum, bleikur ís fyrir stelpur: bannaður strákum. Einhverjum ofbauð og er ekki að undra. Markaðsfólk fyrirtækja hefur ýmislegt á samviskunni, svo ekki sé meira sagt. Gargandi snilldin reynist oft hróplegt bull. Viðbrögð við eðlilegri viðleitni fólks til að forða matvælum frá afkáralegu kynjamisréttinu voru upp og ofan, ef marka má netmiðla.

Í það heila verður að undra sig á afturförinni í umræðu um jafnrétti kynjanna síðustu misseri og ár. Það er furðulegt að geta jafnvel talað um andstæðinga jafnréttis. Eftir talsvert basl tókst okkur nokkurn veginn að losna við forpokuð kynjahlutverk ættuð úr trúarbrögðum, því afkomendur Adams og Evu þekktu sinn stað, en ekki tók betra við þegar þróunarkenningunni var beitt og nú megum við minnast karla á veiðum og kvenna við elda. Velkomin til ársins 2012.

Kynin eru svo ólík! Gott og vel. Það verða alltaf einhverjir sem einblína á æxlunina og greina alla heilastarfsemi, hæfileika og tilfinningar út frá henni. En viljum við virkilega ýta svona gróflega undir það sem er ólíkt og greina kynin æ meir í sundur? Er það þróun í rétta átt? Hver er sá alvitri dómari sem ætlar að draga línuna á réttum stað? Er það kannski Markaðsguðinn sem hlær við gulltönn? Eiga skilin að vera svona skörp? Er ekki rúm fyrir einstaklinga af öllum toga, allt rófið?

Þrátt fyrir lög og reglur sem ættu að tryggja strákum og stelpum jafnrétti erum við
stödd á skrípaöld kynhlutverkanna. Það nægir að horfa til hrollvekjandi notkunar á sílikoni og sterum. Þvílík örvænting! Hvaða sjúkdómur í samfélagi okkar kallar á svona skurðaðgerðir og lyfjaneyslu? Að því er virðist búum við enn við samfélagsgerð þar sem börn og ungmenni eru kúguð af kynhlutverkum sínum, verða fyrir aðkasti, þora ekki, vilja ekki vera þau sjálf vegna þess að kynið skapar þeim örlög langt út fyrir æxlunarhlutverkið. Fyrir einstaklinginn er það þyngra en tárum taki. Fyrir þjóðfélagið er það sóun.

Fyrir skömmu stóð hópur rithöfunda að ráðstefnu í Norræna húsinu sem bar heitið:

Alvara málsins – bókaþjóð í ólestri. Þar var fjallað um vaxandi ólæsi barna og unglinga. Það var troðfullt út úr dyrum og gríðargóðar undirtektir áheyrenda við fjölbreyttum erindum fræðimanna og rithöfunda. Í kjölfarið hafa rithöfundarnir sem stóðu að ráðstefnunni fengið erindi og ábendingar um margt það sem tengist bóklestri barna og unglinga. Þar á meðal ýmislegt sem tengist áberandi slakri útkomu drengja í lestri.

Þó fræðimenn bendi á þá einföldu staðreynd að fyrirmyndirnar verði að standa sig; karlar verði að lesa, ekki síst heima, fyrir sig og með sínum, þá skal það ekki bregðast að einhver beinir athyglinni að skökkum kynjahlutföllum meðal kennara, bókasafnskennara og höfunda barnabóka. Það veit ég að á þeim bæjum standa dyr körlum opnar upp á gátt. Komi þeir fagnandi. En þeir eru kannski bara úti að veiða.

Þá eru það bækurnar. Það er ekki skrifað nóg fyrir stráka. En nóg fyrir stelpur, býst ég við. Er virkilega ekki ein bók í öllu flóðinu sem drengir geta lesið? Því margir lesa ekki eina einustu bók. Hvers vegna er í sívaxandi mæli talað um bækur fyrir stráka og bækur fyrir stelpur? Hvers vegna stía kynjunum enn meira í sundur með bókmenntunum líka? Og hvers vegna geta stelpur lesið um stráka en strákar ekki um stelpur? Þrátt fyrir stjarnfræðilegar og söluvænar kenningar um kynin verð ég að minna á að við búum á plánetunni Jörð. Saman.

Þar sem ég var stödd í verslun á dögunum var mér starsýnt á mynddiska handa börnum. Tveir litir, röð diska með safni hreyfimynda: Bleik hulstur merkt skýrum stöfum STELPUR annars vegar og blá hulstur merkt STRÁKAR hins vegar. Og innihaldið? Barnaefnið um Línu langsokk og Smáfólkið var greinilega ekki ætlað strákum. Og Pósturinn Páll og Bubbi byggir er ekkert stelpuefni. Er Lína virkilega ekki líka fyrir stráka? Byggja stelpur ekki? Kunna útgefendur ekki að skammast sín?

Karlar: Rísið nú upp þar sem þið kúrið við eldinn! Lesið með strákunum ykkar sögurnar um Línu langsokk og aðrar frábærar heimsbókmenntir. Svíkjum ekki börnin okkar, förum saman bæði kynin á veiðar í heimi bókanna.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Bláar myndir