Viðskipti erlent

Bjuggu til vekjaraklukku sem neyðir þig fram úr rúminu - Myndband

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Græjan minnir helst á afkvæmi heilsukodda og baðvigtar.
Græjan minnir helst á afkvæmi heilsukodda og baðvigtar.
Glímirðu oft á tíðum við það leiða vandamál að eiga erfitt með að fara fram úr rúminu á morgnanna? Teygir þú þig of oft í vekjaraklukkuna til þess eins að ýta á „snooze“ takkann? Þá gæti frumkvöðlafyrirtæki í Kanada verið með lausnina fyrir þig.

Lausnin minnir helst á baðvog en er í raun vekjaraklukka sem hættir ekki að pípa fyrr en þú hefur staðið á henni í nægilega langan tíma. Ekki nóg með það heldur bíður hún líka upp á þann möguleika að hægt sé að setja hljóðbrot að eigin vali til að spilast um leið og slökkt er á henni. Hver og einn notandi getur þannig sett ræður eða lög til að koma sér í gang um morguninn.

Hægt er að styðja framleiðendurna inn á vefsíðunni Kickstarter en þar benda þeir m.a. á að meðalmanneskjan sefur í um 26 ár af lífi sínu. Með því að sleppa fimm mínútna „snooze-i“ á degi hverjum er mögulegt að fjölga vökustundum um allt að hundrað daga.

Myndband af græjunni og hvernig hún virkar má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×