Lífið

Bjuggu til emo rokklag úr tístum Trumps

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, með svokallaða „emo hárgreiðslu.“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, með svokallaða „emo hárgreiðslu.“ Vísir/Skjáskot
Ákveðnir internetnotendur hafa tekið sig til og búið til sérstakt rokklag, þar sem raunveruleg tíst forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, eru notuð sem texti lagsins.

Lagið er í stíl svokallaðs „emo“ rokklags sem vinsæl voru í kringum aldamótin. Slík bönd skipuðu jafnan ungt fólk sem hafði það sameiginlegt að semja drungalega og/eða vonlitla texta um lífið og tilveruna. Þá klæddu þau sig jafnframt upp og greiddu hár sitt í takt við tilfinningar sínar.

Eins og heyra má smellpassa tíst Trumps sem texti í slíku lagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×