Innlent

Björt vill ekki að sitja undir kjaftæði miðaldra kalla

Jakob Bjarnar skrifar
Björt vildi ekki sitja undir kjaftæði hins miðaldra kalls sem birtist henni í líki Jóns Gunnarssonar í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.
Björt vildi ekki sitja undir kjaftæði hins miðaldra kalls sem birtist henni í líki Jóns Gunnarssonar í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.
Björt Ólafsdóttir lét Jón Gunnarsson heldur betur heyra það í morgun, þegar hann lét það eftir sér að segja hana ekki hafa kynnt sér málin nægjanlega vel. Hún sagðist ekki nenna slíku kjaftæði frá miðaldra kalli.

Björt, sem þingmaður Bjartrar framtíðar og Jón, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, voru gestir í Morgunútvarpi Ríkisútvarpsins í morgun og ræddu þar rammaáætlun. Bæði sitja þau í atvinnuveganefnd þar sem Jón fer með formennsku.

Þau greinir meðal annars á um hvort samþykkja beri nýtingarflokk rammaáætlunar fyrir þinglok. Sá er vilji Jóns en hann teygði sig heldur langt að mati Bjartar þegar hann sagði að það hlyti að vera svo, í svo mikilvægum málum sem rammaáætlun er, að fólk kynnti sér málin.

„Það þarf að kynna sér þetta betur en þessi málflutningur ber með sér að hafi verið gert. Það er bara því miður þannig.“

Þessi ummæli fóru mjög fyrir brjóst Bjartar sem lét Jón hafa það óþvegið í beinni útsendingu.

„Ég nenni ekki að sitja undir þessu. Ég nenni ekki enn eina ferðina að hér sé miðaldra karl sem segi – heyrðu vinkona, viltu gjöra svo vel kynna þér aðeins málið betur. Ég nenni ekki svona kjaftæði. Ég er búin að sitja með þér í atvinnuveganefnd í þrjú ár og Jón getur ekki sagt að við hjá Bjartri framtíð, og ég í þeirri nefnd, sé ekki sanngjörn í því mati að meta þessa hluti,“ sagði Björt og hélt því fram að munurinn sé einfaldlega sá að Björt framtíð og Sjálfstæðisflokkurinn séu með ólíka stefnu í þessum málum. „Það er það sem þetta snýst um. Við viljum ekki fleiri stóriðjur. Við viljum ekki að Landsvirkjun sé að festa fleiri orkusamninga fyrir lágt verð.“

Jón lét ekki slá sig út af laginu, þegar spyrill greip inní og spurði hvort það þyrfti að setja mál fram með þeim hætti að annar aðilinn hafi ekki kynnt sér málin. Hvort hann væri ekki að tala niður til Bjartar? Jón taldi ekki svo vera og sagðist standa við orð sín. „Vegna þess að þetta er þannig.“


Tengdar fréttir

Vill slíta rammann í sundur og flýta nýtingu

Jón Gunnarsson telur ástæðu til að fresta ákvörðun um verndarflokk og biðflokk í þriðja áfanga rammaáætlunar. Hann vill samþykkja nýtingarflokkinn úr atvinnuveganefnd til að hægt sé að virkja sem fyrst. Minnihlutinn telur þetta óá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×