Innlent

Björt Ólafs kemur aftur inn með látum: „Takk fyrir ekkert“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Björt Ólafsdóttir tók sæti á ný sem þingmaður í dag.
Björt Ólafsdóttir tók sæti á ný sem þingmaður í dag. Vísir/Anton
Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar tók sæti á ný sem þingmaður í dag, aðeins þremur mánuðum eftir að hún eignaðist tvíbura. Björt var ómyrk í máli þegar hún sagði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætla í ár að gefa aðganginn að fiskveiðiauðlindinni.

Kvótaeigendur heilt yfir munu samkvæmt áætlun í frumvarpi til fjárlaga 2016 ekki borga nema 5,3 milljarða í veiðigjöld fyrir árið 2015. Veiðigjöldin hafa á síðustu árum verið um helmingi hærri."

Í ár fari veiðigjaldið hins vegar aðeins í iðnaðinn sjálfan. „Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga mun ekkert renna í sameiginlega sjóði til handa þjóðinni. Leigan er 0 kr. Við fáum ekkert til að standa undir sameiginlegum verkefnum allrar þjóðarinnar, til dæmis heilbrigðisþjónustu. Eigendur auðlindarinnar fá ekkert í sinn hlut."

Hún sagði stöðuna eftirtektarverða og sérstaka. „Vegna þess að það er ekki eins og sjávarútvegsfyrirtækin berjist í bökkum. Það vita forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar mætavel. Fyrir mánuði stóð hæstvirtur forsætisráðherra sjálfur á fundi Samtaka sjávarútvegsfyrirtækja og hældi greininni í hástert fyrir að hafa á árinu slegið Íslandsmet í útflutningi. Það er gott að það gengur vel en það er óþolandi að þjóðin fái engan skerf af þeirri velgengni. Ef sjávarútvegsfyrirtækin geta greitt sér arð vegna þess að vel gengur eiga eigendur auðlindarinnar eins rétt á sínum arði — en ríkisstjórnin er greinilega á öðru máli."

Björt lauk svo ræðu sinni á orðunum:

„Ég segi bara: Takk fyrir ekkert."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×