Sport

Björninn styrkir sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ingþór lék í Svíþjóð á síðasta tímabili.
Ingþór lék í Svíþjóð á síðasta tímabili. mynd/björninn
Íshokkídeild Bjarnarins hefur gengið frá samningi við varnarmanninn öfluga Ingþór Árnason frá Akureyri.

Á síðasta leiktímabili lék Ingþór við góðan orðstír með Motala AIF sem er í 2. deild í Svíþjóð.

Ingþór hefur verið einn af lykilleikmönnum íslenskra landsliða um árabil og átti góða innkomu í Ólympíuúrtakið og á HM í vetur með A-landsliðinu.

Ingþór kemur til með að styrkja varnarlínu Bjarnarins sem varð fyrir áfalli í vetur þegar Birkir Árnason, fyrirliði liðsins, sleit krossband. Ekki búst við að hann snúi aftur á völlinn á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×