Innlent

Björn Þorláksson íhugar sérframboð

Jakob Bjarnar skrifar
Björn Þorláksson er ekki af baki dottinn þegar frami á hinum pólitíska vettvangi er annars vegar, þó Píratar hafi hafnað honum.
Björn Þorláksson er ekki af baki dottinn þegar frami á hinum pólitíska vettvangi er annars vegar, þó Píratar hafi hafnað honum.
Blaðamaðurinn Björn Þorláksson er ekki búinn að gefa frá sér allar hugmyndir um möguleika á því að geta látið til sín taka á hinum pólitíska vettvangi ef marka má nýlegan pistil sem hann birti á Facebooksíðu sinni. Hann veltir nú fyrir sér möguleikunum á sérframboði.

Eins og fram kom í gær þá varð Björn mjög ósáttur við niðurstöðu í prófkjöri Pírata í Norð Austur-kjördæmi en þar hafnaði hann í sjöunda sæti. Björn hafði sóst eftir því að leiða lista en varð ekki að ósk sinni og vandaði í kjölfarið Pírötum ekki kveðjurnar. Hann lýsti því jafnframt yfir að hann hefði engan áhuga á að þiggja þetta sjöunda sæti.

Nú varpar Björn fram spurningu til vina sinna á Facebook, svohljóðandi:

„Spurningin er: Eigum við að taka okkur saman og stofna nýtt afl? A.m.k. í þessu kjördæmi? Í þessu kjördæmi vantar e.t.v. nýtt afl með góðum fulltrúum, aukið viðnám gegn spillingu? Hér eru nokkrir punktar, drög að afar óformlegum áherslum getum við kallað það án þess að taka okkur of alvarlega!“

Björn fylgir eftir þessum spurningum með því sem hæglega mætti notast við sem stefnuskrá nýs stjórnmálaafls þar sem hann leggur áherslu á að berjast gegn spillingu hvar sem hana er að finna. Hann vill jöfnuð, hann vill berjast fyrir jafnrétti á öllum sviðum og skírskotar til femínista sem hann segir hina einu sönnu varðhunda almennings.

Þá er sem Björn leiti í hugmyndabrunn Jóns Gnarrs og Besta flokksins því hann vill flytja inn mörgæsir og fóstra þær á andapollinum á Akureyri.

Hér fyrir neðan getur að líta Facebookpistill Björns en þar má betur kynna sér þessi drög að manifestó.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×