Viðskipti innlent

Björn Þór skipaður skrifstofustjóri skrifstofu opinberra fjármála

Atli Ísleifsson skrifar
Björn Þór Hermannsson
Björn Þór Hermannsson Mynd/Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Björn Þór Hermannsson hefur verið skipaður í embætti skrifstofustjóra skrifstofu opinberra fjármála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá 1. september næstkomandi.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að Björn Þór hafi lokið B.Sc. prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í fjármálahagfræði frá sama skóla árið 2010.

„Hann hefur starfað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá 2011 en áður starfaði hann í velferðarráðuneytinu. Björn hefur frá árinu 2014 verið staðgengill skrifstofustjóra.

Embættið var auglýst í júní síðastliðnum og sóttu 13 um,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×