Handbolti

Björn Ingi frá HK í Stjörnuna

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Björn Ingi í leik með HK
Björn Ingi í leik með HK vísir/ernir
Markvörðurinn Björn Ingi Friðþjófsson hefur ákveðið að söðla um og gengið til liðs við nýliða Stjörnunnar í Olís deild karla í handbolta frá HK. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í morgun.

Björn Ingi hefur varið mark HK um árabil og lék stórt hlutverk þegar liðið vann sinn eina Íslandsmeistaratitil til þessa vorið 2012.

Björn Ingi átti við meiðsli að stríða á síðustu leiktíð og lék ekkert með liðinu seinni hluta mótsins vegna brjóskloss í baki. Hann verður þó klár í slaginn með nýju liði í haust.

HK fékk fyrr í sumar markvörðinn Lárus Helga Ólafsson til liðs við sig frá Val og er honum ætlað að fylla skarð Björns Inga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×