Fótbolti

Björn Daníel tryggði sigurinn | Fimmtán íslensk mörk hjá Viking

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Valli
Björn Daníel Sverrisson tryggði Viking góðan útisigur á Brann, 1-0, í norsku úrvalsdeildinni í dag en markið skoraði hann með þrumufleyg af 30 metra færi.

Markið skoraði hann á 35. mínútu en allir fimm Íslendingarnir voru í byrjunarliði Viking - Indriði Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Jón Daði Böðvarsson auk Björns Daníels.

Jón Daði og Steinþór Freyr voru teknir af velli í síðari hálfleik en Birkir Már Sævarsson sat allan leikinn á varamannabekk Brann.

Íslendingarnir fimm hafa skorað fimmtán af 21 marki Viking í deildinni í sumar en þetta var fjórða mark Björns. Jón Daði hefur skorað fimm, Steinþór þrjú, Sverrir tvö og Indriði eitt.

Viking er í sjötta sæti deildarinnar með 26 stig en Brann í næstneðsta sætinu með tólf.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×