Fótbolti

Björn Daníel með stoðsendingu í sigri Viking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Daníel upp þriðja mark Viking.
Björn Daníel upp þriðja mark Viking. vísir/getty
Björn Daníel Sverrisson og félagar í Viking komust aftur á sigurbraut þegar þeir tóku á móti Haugesund í norsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Viking vann leikinn 3-2 og er í 8. sæti deildarinnar með 13 stig eftir átta leiki.

Torbjørn Agdestein kom Haugesund yfir á 14. mínútu en Mathias Bringaker jafnaði metin 10 mínútum fyrir hálfleik.

Staðan var 1-1 í hálfleik og fram á 71. mínútu þegar Suleiman Abdullahi kom Viking yfir. Hann var svo aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar þegar hann skoraði eftir sendingu Björn Daníels.

Agdestein hleypti spennu í leikinn þegar hann minnkaði muninn í 3-2 á 86. mínútu en nær komust gestirnir ekki.

Björn Daníel var tekinn af velli á 77. mínútu. Hafnfirðingurinn hefur byrjað alla átta leiki Viking í deildinni á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×