Lífið

Björn Bragi gafst upp á sumrinu

Björn og snákur.
Björn og snákur.
Margir íbúar höfuðborgarinnar hafa fengið sig fullsadda af rigningarsudda og hreti sem barið hefur á Reykvíkingum svo vikum skiptir.

Þeirra á meðal er fjölmiðlamaðurinn Björn Bragi Arnarsson sem birti í kvöld myndband af uppgjöf sinni en hann er einn þeirra fjölmörgu Íslendinga sem flykkst hafa til útlanda á síðustu dögum.

Fréttastofa stöðvar 2 greindi frá því fyrir helgi að sólarlandaferðir hafa selst sem aldrei fyrr og ferðaskrifstofur hafa vart undan að svala útlandaþrá sólþyrstra landsmanna.

Hvort ferðaskrifstofurnar bjóði upp á sama ferðamáta og Björn Bragi nýtir sér í myndbandinu hér að neðan skal þó ósagt látið, enda geta niðurstöðurnar oft orðið óútreiknalegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×