Fótbolti

Björn Bergmann byrjar gegn Kína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson. vísir/ernir
Björn Bergmann Sigurðarson er meðal þeirra leikmanna sem fá tækifærið hjá Heimi Hallgrímssyni, landsliðsþjálfara, í leik liðsins gegn Kína í dag.

Leikurinn er liður í China Cup-mótinu í Nanning í Kína en Króatía og Síle eru einnig þátttökuþjóðir á mótinu.

Aðeins leikmenn sem spila í deildum sem eru nú í fríi eru í landsliðshópnum að þessu sinni þar sem ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða.

Af fastamönnum úr landsliðinu eru þeir Hannes Þór Halldórsson, Kári Árnason og Birki Már Smárason á sínum stað.

Byrjunarliðið er annars þannig skipað fyrir leikinn sem hefst klukkan 12.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Ísland (4-4-2):

Markvörður:

Hannes Þór Halldórsson

Varnarmenn:

Kristinn Jónsson

Jón Guðni Fjóluson

Kári Árnason

Birkir Már Sævarsson

Miðjumenn:

Theodór Elmar Bjarnason

Björn Daníel Sverrisson

Guðlaugur Victor Pálsson

Arnór Smárason

Sóknarmenn:

Elías Már Ómarsson

Björn Bergmann Sigurðarson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×