Innlent

Björk vísar fullyrðingum á bug

Hjörtur Hjartarson og Gunnar Leó Pálsson skrifar
Skólastjórar í Breiðholti og Árbæ ásamt starfsmönnum þjónustumiðstöðvarinnar í Breiðholti hafa áhyggjur af ungum fíklum sem vikið er úr skóla.
Skólastjórar í Breiðholti og Árbæ ásamt starfsmönnum þjónustumiðstöðvarinnar í Breiðholti hafa áhyggjur af ungum fíklum sem vikið er úr skóla. mynd/heiða
„Tillögunni var ekki hafnað út af því að hún væri of kostnaðarsöm heldur var það faglegur ágreiningur sem varð til þess að henni var hafnað. Velferðarsvið er með 23 milljarða króna rekstur og þess vegna eru tuttugu milljónir bara smápeningar,“ segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var sagt frá því að tillögu um nýtt úrræði fyrir nemendur í vímuefnavanda hefði verið hafnað af borgaryfirvöldum fyrir fjórum árum þar sem hún þótti of kostnaðarsöm. Einn af hugmyndasmiðum tillögunnar segir að áætlaður rekstarkostnaður hafi verið 20 milljónir króna á ári, sem sé aðeins brot af því sem það kostar að missa barn inn í heim fíkniefnanna.

„Sú áætlun gekk út á það að ef barn yrði uppvíst að neyslu þá færi það ekki í heimaskóla heldur færi á sérstakan stað. Í gegnum þann stað gæti þá ráðgjöf við aðra tengst,“ segir Hákon Sigursteinsson, einn höfunda skýrslunnar og sálfræðingur hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts.

Hann segir að þangað gætu aðilar frá SÁÁ komið sem og frá öðrum stofnunum en að aðalatriðið væri að ef nemandi yrði uppvís að neyslu væri hægt að bregðast við strax. „Nemandinn yrði tekinn úr skóla, hann fengi viðeigandi skólaúrræði í aðstæðum sem væri þar sem væri bæði ráðgjöf og meðferð í gangi,“ bætir Hákon við. Í dag er einstaklingum sem verða uppvísir að neyslu vikið úr skóla tímabundið og vill það oft verða þannig að þeir hanga heima sér, oft á tíðum eftirlitslausir, sem Hákon segir gera illt verra.


Tengdar fréttir

Vildi vera á beinu brautinni

Ung móðir stytti sér aldur á Vogi fyrr í mánuðinum eftir að hafa barist lengi við vímuefnafíkn. Hún hét Ástríður Rán Erlendsdóttir og var aðeins 22 ára þegar hún lést. Móðir hennar og amma segja frá baráttu Ástríðar.

Helmingi færri úrræði fyrir börnin

Pólitískan vilja skortir til að hjálpa ungu fólki í vímuefnaneyslu, segir Sigurbjörg Sigurðardóttir einn stofnandi Olnbogabarna, samtaka aðstandenda ungmenna með áhættuhegðun. Hún tekur undir gagnrýni um úrræðaleysi frá fjölskylda ungrar móður sem svipti sig lífi á Vogi fyrr í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×