Erlent

Segir Lars von Trier hafa borið upp kynferðisleg boð á meðan konan hans stóð við hliðina á þeim

Birgir Olgeirsson skrifar
Björk og Lars von Trier á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Björk og Lars von Trier á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Vísir/Getty

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir hefur lýst því frekar hvernig hún upplifði kynferðislega áreitni frá leikstjóranum Lars von Trier við tökur á dönsku kvikmyndinni Dancer in the Dark.

Björk birti stöðuuppfærslu á Facebook á sunnudag þar sem hún lýsti áreitninni frá Lars á tökustað. Samdægurs birti Jótlandspósturinn viðtal við Peter Aalbæk Jensen, framleiðanda Dancer in the Dark, þar sem hann hafnaði þessum ásökunum og sagði Björk hafa stjórnað öllu á tökustað og gert öllum erfitt fyrir við tökur myndarinnar.

Lars von Trier hefur sjálfur einnig hafnað þessum ásökunum Bjarkar og er málflutningar hans svipaður og sá frá Jensen.

Segir hann hafa strokið hana mínútum saman

Í Facebook-færslu sem Björk birtir í dag segir hún Lars hafa hlaupið til hennar eftir hverja töku, tekið utan um hana fyrir framan allt tökuteymið og stundum strokið hana mínútum saman gegn hennar vilja.

Hún sagðist hafa hafa beðið hann um að hætta þessum snertingum og hann hafa brjálast við það og brotið stól fyrir framan alla á tökustað. „Eins og einhver sem alltaf hefur mátt láta vel að leikkonum sínum. Við vorum síðan öll send heim.“

Á meðan tökum stóð hafi Lars stöðugt hvíslað að henni kynferðisleg boð gegn hennar vilja. Þeim fylgdu grafískar lýsingar sem Björk segir hafa verið lamandi fyrir hana. „Stundum á meðan eiginkonan hans stóð hjá okkur.“

Klifraði á milli svala

Þegar tökur fóru fram í Svíþjóð hafi hann hótað að klifra á milli svala á hóteli til að komast inn á hótelherbergi hennar með augljósan ásetning um kynferðislega tilburði. „Á meðan eiginkonan hans var í næsta herbergi. Ég náði að flýja í herbergi til vinar míns. Þetta er það sem gerði það að verkum að ég áttaði mig á alvarleika málsins og fékk mig til að standa á mínu.“

Hún segir Lars hafa skáldað sögur í fjölmiðlum um það að hún hefði verið erfið á tökustað. „Þetta passar fullkomlega við aðferðir Weinstein. Ég hef aldrei borðað blússu. Ekki viss um að það sé jafnvel hægt,“ skrifar Björk og vitnar þar í bandaríska kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein sem hefur verið sakaður af fjölda kvenna um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi. Hafa margar þeirra sagst hafa verið hræddar við að segja frá framferði Weinsteins því þær óttuðust að hann myndi gera út af við feril þeirra, enda einn af valdamestu mönnum Hollywood.

Peter Aalbæk Jensen minntist á þetta blússuatvik í viðtalinu við Jótlandspóstinn. Áður höfðu verið sagðar fréttir af því að Björk hefði neitað að klæðast blússu við tökur á myndinni sem von Trier hafði óskað eftir. Í mómælaskyni átti hún að hafa rifið blússuna og lagt tætlur hennar sér til munns.

Hún segist ekki hafa samþykkt að vera beit kynferðislegri áreitni. Það hafi verið túlkað eins og hún hafi reynst erfið á tökustað. „Ef það að standa á sínu er að vera erfið, þá skal ég vera það,“ skrifar Björk.


Tengdar fréttir

Lars von Trier: „Ég gerði þetta ekki“

Danski leikstjórinn Lars von Trier segir ekkert til í frásögn söngkonunnar Bjarkar um að hann hafi áreitt hana kynferðislega á tökustað myndarinnar Dancer in the Dark.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×