Lífið

Björk fílar rappið

Björk Guðmundsdóttir er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu.
Björk Guðmundsdóttir er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu. mynd/einkasafn
Bandaríski rapparinn og listamaðurinn Ojay Morgan, betur þekktur sem Zebra Katz, er staddur hér á landi um þessar mundir en hann hélt tónleika á Húrra á föstudagskvöld þar sem þakið rifnaði nánast af húsinu.

Þar var tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir fremst og hlýddi á tónlist rapparans. Zebra er þekktur fyrir líflega framkomu á sviði og skemmtilega búninga en það er Björk einnig þekkt fyrir og hefur tónlistarkonan jafnvel náð að tengja við áhrifamikla sviðsframkomu listamannsins.

Zebra kom fram með svarta grímu á andlitinu og í hermannagalla en hann er einnig að vinna að nýju lagi ásamt Högna Egilssyni og að öðru lagi með Ásdísi Maríu Viðarsdóttur söngkonu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×