Handbolti

Björgvin reyndi að meiða samherja og tilvonandi andstæðing

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er farið að styttast í leik Íslands og Tékklands í undankeppni EM í handbolta og landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson var með hugann við leikinn í dag.

Þá sá hann um Snapchat-reikning Nova og reyndi þá að koma liðsfélaga sínum, Thomas Babak, úr leik en hann er einmitt leikmaður tékkneska landsliðsins. Björgvin notaði meðal annars gamla góða bananahýsið-trixið.

Þetta var að sjálfsögðu allt gert í gríni og samkvæmt okkar heimildum slasaðist enginn við gerð myndbandsins.

Snapsögu Bjögga má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Björgvin: Ég þarf að finna gleðina og gredduna aftur

Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson kom ansi mörgum á óvart í morgun er hann tilkynnti að hann hefði samið við Hauka. Hann mun þó ekki ganga í raðir Hauka fyrr en næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×