Handbolti

Björgvin Páll kominn heim og samdi við Hauka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í handbolta Björgvin Páll Gústavsson er búinn að ákveða að koma heim og hefur gengið frá samningi við Íslandsmeistara Hauka.

Björgvin Páll segir frá þessu á fésbókarsíðu sinni í dag og þá er einnig frétt um nýjan markvörð Haukaliðsins inn á heimasíðu félagsins. Björgvin Páll hefur spilað með þýska liðinu Bergischer HC frá árinu 2013.

„Þetta kemur kannski mörgum á óvart að ég skuli á þessum tímapunkta á ferlinum taka þennan slag að koma heim og leika á Íslandi en ástæðan fyrir því er einföld. Mig langar það!,“ skrifa  Björgvin Páll Gústavsson á fésbókinni og bætir við:

„Ég spurði sjálfan mig að einfaldri spurningu „Hvað myndir þú vilja gera ef að peningar skiptu engu máli?“. Alltaf komst ég að þeirri niðurstöðu að mig langar að fara til Íslands, mig langar að njóta þess meira að spila handbolta, mig langar að hjálpa íslenskum markmönnum að verða betri, mig langar að æfa á mínum forsendum og fyrir mig, mig langar að verða betri markmaður, mig langar að vinna með boltanum í markaðsstörfum, mig langar að ala upp stelpuna mína á Íslandi, mig langar að sjá fjölskylduna mína og vini oftar og mig langar að búa á Íslandi,“ skrifar Björgvin Páll.

Björgvin Páll skrifaði undir tveggja ára samning við Hauka en hann mun einnig vera aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar. Gunnar staðfesti það við íþróttadeild 365 í morgun.

Björgvin Páll Gústavsson er 31 árs gamall en hann hefur spilað sem atvinnumaður undanfarin níu ár, bæði í Sviss og Þýskalandi. Hann hefur verið aðalmarkvörður íslenska landsliðsins undanfarin átta ár og var lykilmaður þegar Ísland vann silfrið á ÓL í Peking 2008 og bronsið á EM í Austurríki 2010.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×