Handbolti

Björgvin Páll: Þurfa að sýna hvort þeir eru menn eða mýs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eins og venjulega er mikil pressa á markvörðum íslenska landsliðsins í handbolta.

„Það er þannig í öllum mótum og öllum leikjum að við markverðirnir þurfum að verja einhverja til að við vinnum leikina. Við gerum okkar besta og vinnum alla okkar undirbúningsvinnu,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson í samtali við Arnar Björnsson í Metz þar sem Ísland leikur sína leiki á HM.

Björgvin Páll og félagar fá oftar en ekki harða gagnrýni ef þeir standa sig ekki.

„Við erum síðasti hlekkurinn í þessu. Ef boltinn fer inn er það mark en ef ekki þá er hann varinn. Það veltur mikið á markvörðunum og ég valdi mér þessa stöðu á sínum tíma vitandi það. Það fylgir þessu mikil ábyrgð, þótt ég hafi ekki mér grein fyrir því átta ára gamall hversu mikil ábyrgðin er,“ sagði Björgvin Páll sem er hvergi banginn fyrir leikinn gegn Spáni í kvöld.

„Nei, nei. Við erum bara fullir tilhlökkunar. Það er alltaf áskorun að fá svona verkefni í fyrsta leik. Þetta eru gaurar sem við þekkjum vel og eru í heimsklassa. Við erum ekkert smeykir og þurfum að vera klárir í þetta verkefni. Við misstum auðvitað Aron Pálmarsson út og nú þurfa menn að stíga upp og sýna hvort þeir eru menn eða mýs,“ sagði markvörðurinn.

Fréttina í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?

Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

Einar: Vona að liðið sýni mikinn karakter

Það mæðir mikið á framkvæmdastjóra HSÍ, Einari Þorvarðarsyni. Hann er nú á enn einu stórmótinu og hefur reynt þetta allt - leikmaður, þjálfari og framkvæmdastjóri. Einar fór á sitt fyrsta heimsmeistaramót árið 1981.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri

Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×