Handbolti

Björgvin Páll: Enn með Hvít-Rússa leikinn í hausnum

Henry Birgir Gunnarsson í Split skrifar
Bjöggi er lítillega meiddur en verður vonandi í stuði í dag.
Bjöggi er lítillega meiddur en verður vonandi í stuði í dag. vísir/ernir
Keppnismaðurinn Björgvin Páll Gústavsson var ekkert að velta sér of mikið upp úr Króataleiknum í gær enda bíður leikur í dag þar sem allt er undir.

Björgvin er með nýliða með sér í markinu, Ágúst Elí Björgvinsson, og svo er gamli landsliðsþjálfarinn Roland Eradze hér í Split að vinna með þeim.

„Við Ágúst erum með ólíka stíla og komum með athugasemdir við hvorn annan. Svo kemur Roland inn í þetta með aðrar pælingar sem við erum kannski ekki með,“ segir Björgvin en hann varði lítið gegn Króötum en stefnir á að gera betur í dag.

„Það er alltaf planið að verja meira en í síðasta leik. Króataleikurinn var ekkert spes af okkar hálfu. Það kemur dagur eftir þennan dag og lykilleikurinn i mótinu fram undan. Að fara með tvö stig í milliriðil væri frábært ef það tækist.“

Fyrir mót var helst horft til þess að íslenska liðið ætti möguleika gegn Serbum í riðlinum. Þannig er það oftast en þeir leikir hafa oftar en ekki orðið snúnir. Til að mynda á síðasta EM er strákarnir töpuðu mjög óvænt gegn Hvít-Rússum og voru sendir heim þó svo þeir hefðu lagt Norðmenn sem síðan fóru alla leið í úrslit.

„Við erum vonandi reynslunni ríkari og erum komnir lengra en við vorum í síðasta móti. Serbar eru með gríðarlega sterkt lið og líklega betur mannað en við. Þeir eru samt ekki með eins sterkt lið. Við verðum að sýna að við séum alvöru lið og alvöru gaurar,“ segir Björgvin en hann er alls ekki búinn að gleyma leiknum gegn Hvít-Rússum fyrir tveim árum síðan.

„Ég er með þann leik í hausnum. Sérstaklega þar sem ef við erum að fara að vinna þennan leik þá erum við líklega að fara að mæta þeim. Maður reynir að nota reynsluna og fortíðina til þess að kveikja í sér.“

Strákarnir fara áfram með tvö stig ef þeir vinna Serba og eiga því möguleika á að gera framhaldið afar skemmtilegt.

„Við megum samt ekki hugsa of langt en það er gaman að fá tækifæri til þess að komast áfram á eigin forsendum.“


Tengdar fréttir

Björgvin æfði ekki með liðinu í dag

Markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson gat ekki tekið þátt á æfingu landsliðsins í Split í dag þar sem hann er meiddur á ökkla.

Geir: Strákarnir þurfa að nota reiðina á réttan hátt

Undirbúningur fyrir úrslitaleikinn gegn Serbíu á EM hófst strax í morgun og veitir ekki af enda að ýmsu að huga í leik serbneska liðsins. Hvernig ætlar Geir Sveinsson landsliðsþjálfari að fara að því að vinna leikinn?

Ýmir: Aldrei áður farið á svona langa fundi

Nýliðinn Ýmir Örn Gíslason fékk að spila í rúmar fjórar mínútur í leiknum gegn Króatíu í gær. Það var létt í honum hljóðið á hóteli landsliðsins í dag.

Ásgeir Örn: Serbarnir eru óútreiknanlegir

Ásgeir Örn Hallgrímsson er einn reyndasti leikmaður íslenska landsliðsins búinn að ganga í gegnum margt með liðinu. Hann var lítið að stresssa sig á tapinu gegn Króatíu í dag og er farinn að horfa fram á veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×