Innlent

Björgvin G. tekur sæti á þingi á ný

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Björgvin G. Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson vísir/anton
Björgvin G. Sigurðsson mun taka sæti á Alþingi sem varamaður á Alþingi er þingfundur hefst næstkomandi mánudag kl. 15. Oddný G. Harðardóttir er á leið til New York í tvær vikur vegna undirbúnings í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Oddnýjar.

Viðskiptaráðherrann fyrrverandi var í fréttum fyrr á þessu ári í kjölfar þess að hann hætti sem sveitarstjóri Ásahrepps. Málið snerist um hvort Björgvini hefði verið heimilt að greiða sér laun fyrir fram. Komust hann og hreppurinn að samkomulagi um hvernig hann myndi endurgreiða féð.

Í samtali við Vísi segir Björgvin að hann hlakki mjög til að koma aftur á gamla vinnustaðinn en nú eru nærri sextán ár upp á dag frá því að hann tók sæti á þingi í fyrsta skipti. Þá var hann varamaður Margrétar Frímannsdóttur. Aðspurður segir hann að hann sé að vinna nokkur þingmál sem hann hyggist leggja fram á meðan hann er á þingi. „Ég mun nýta tímann vel,“ segir Björgin.

Ungir jafnaðarmenn hvöttu Björgvin til að stíga til hliðar og taka ekki sæti á þingi á ný þar til hann nyti aftur trausts flokks síns og almennings. Að öllu óbreyttu mun Björgvin taka sæti á þingi er þingfundur hefst kl. 15 næstkomandi mánudag.




Tengdar fréttir

Fyrrverandi ráðherra rekinn vegna fjárdráttar í Ásahreppi

Björgvin G. Sigurðsson dró sér fé í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps. "Fyrst með litlum greiðslum hér og þar, en vatt upp á sig líkt og snjóbolti sem rúllar niður brekku,“ segir Egill Sigurðsson, oddviti Ásahrepps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×