Innlent

Björgvin á leið í áfengismeðferð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
„Ég hætti að drekka fyrir 10 árum og það gekk vel í nokkur ár en í róti síðustu ára fór ég að misnota það aftur í vaxandi mæli.“
„Ég hætti að drekka fyrir 10 árum og það gekk vel í nokkur ár en í róti síðustu ára fór ég að misnota það aftur í vaxandi mæli.“ Vísir/Vilhelm
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum sveitarstjóri Ásahrepps, mun fara í áfengismeðferð næstkomandi miðvikudag. Hann mun því ekki taka við ritstjórastarfi Herðubreiðar eins og tilkynnt var um fyrir helgi.

Frá þessu er greint á vef Herðubreiðar og segir hann í samtali við miðilinn að hann þurfi að líta í eigin barm.

Eftirfarandi er haft eftir Björgvini á Herðubreið:

„Hluta þess sem nú er orðið að fréttaefni má vitaskuld rekja til dómgreindarbrests sem stafar án efa af viðvarandi og óhóflegri áfengisneyslu um nokkurra missera skeið. Ég hafði ákveðið að leita aðstoðar á göngudeild þar sem ég hafði óskað eftir meðferð og hugðist sinna vinnu meðfram því, en eftir áföll síðustu daga er mér ljóst að ég þarf meiri hjálpar við.

Ég hef því ákveðið að leita mér lækninga á Vogi frá og með næsta miðvikudegi og fara í fulla meðferð við áfengissýkinni. Ég hætti að drekka fyrir 10 árum og það gekk vel í nokkur ár en í róti síðustu ára fór ég að misnota það aftur í vaxandi mæli.“

Björgvini var sagt upp störfum sem sveitarstjóri Ásahrepps í liðinni viku og skrifaði hann undir starfslokasamning við sveitarstjórnina á föstudaginn.

Frá því var svo greint í Fréttablaðinu í morgun að Björgvin hefði verið rekinn vegna þess að hann dró sér fé í opinberu starfi.

Björgvin hefur hafnað ásökunum um fjárdrátt. Hann viðurkennir þó að hafa átt að óska eftir heimild til að greiða sér laun fyrirfram og taka út vörur og þjónustu til einkanota á debetkort sveitarfélagsins.

„Þetta var allt kyrfilega merkt í bókhaldi hreppsins að um fyrirfram greidd laun væri að ræða, allar nótur um smærri útgjöld lágu fyrir og var skilað inn til bókhaldara. Það er því svo fjarri lagi að það hafi með nokkrum hætti staðið til að misfara með fé eða leyna því. Ég hefði hins vegar átt að óska heimilda vegna útgjaldanna og fyrirframgreiðslu. Það voru mín mistök í málinu og ég hef beðist afsökunar á því,“ sagði Björgvin í samtali við Vísi fyrr í dag.




Tengdar fréttir

Fyrrverandi ráðherra rekinn vegna fjárdráttar í Ásahreppi

Björgvin G. Sigurðsson dró sér fé í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps. "Fyrst með litlum greiðslum hér og þar, en vatt upp á sig líkt og snjóbolti sem rúllar niður brekku,“ segir Egill Sigurðsson, oddviti Ásahrepps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×