Innlent

Björgunarsveitirnar hafa klárað þúsund verkefni í dag

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Björgunarsveitarfólk að störfum í dag.
Björgunarsveitarfólk að störfum í dag.
Björgunarsveitarfólk hefur lokið leit á rúmlega helmingi þess svæðis sem kortlagt var fyrir leitina að Birnu Brjánsdóttur um helgina. Þá hefur Landsbjörg lokið helmingi þeirra tvö þúsund verkefna sem lagt var upp með að klára um helgina.

Björgunarsveitarfólk stendur enn í leitaraðgerðum en gert er ráð fyrir að aðgerðum dagsins ljúki klukkan átta í kvöld. Þetta segir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Vísi. 

Leitaraðgerðir um helgina eru þær umfangsmestu í sögu Landsbjargar en alls hafa 500 manns tekið þátt í leitinni í dag. Lagt er áherslu á að leita um helgina á svæði frá Borgarnesi að Selfossi og á öllum Reykjanesskaganum. Notast hefur verið við bíla, tvær þyrlur, dróna, hunda og fjórhjól við leitina en björgunarsveitin stefndi á að leysa um 2000 verkefni um helgina.

Í dag var áhersla á leit á Reykjanesskaganum, á svæði fyrir ofan Hafnarfjörð og á Bláfjallasvæðinu. Að sögn Þorsteins hafa björgunarsveitarnar leitað hundrað metra sitt hvoru megin við alla vegaslóða á þessum svæðum

„Við höfum lokið rúmlega helmingi þeirra tvö þúsund verkefna sem úthlutað var fyrir helgina, við erum þá búin með rúmlega helming þess svæðis sem við ætluðum okkur að leita á“ segir Þorsteinn sem segir að leitin nái þó ekki til svæðisins sem er handan Hvalfjarðarganga, þar sem ekkert bendi til þess að KIA Ryo bílnum hafi verið ekið þangað.

Endurmeta stöðuna á morgun ef engar vísbendingar finnast

Þorsteinn segir að í dag hafi ekki fundist vísbendingar sem tengjast hvarfi Birnu. „Við höfum fundið töluvert magn af ýmsum hlutum í dag, sem lögreglan hefur komið og skoðað en ekkert af þeim tengjast málinu.“

Spurður um framhald leitarinnar segir Þorsteinn að leit verði haldið áfram á morgun og gert er ráð fyrir því að afgangur þeirra verkefna sem eftir eru á leitarsvæðinu verði kláraður á morgun.

„Þessi verkefni koma til með að klárast á morgun og ef ekkert finnst og engar vísbendingar koma fram sem tengjast málinu verður staðan endurmetin.“

Þorsteinn segir að þrátt fyrir nokkuð erfiðar veðuraðstæður á leitarsvæði í dag sé engan bilbug að finna á leitarfólki og verður leit haldið áfram klukkan átta í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Leyfir sér að vera vongóður um að Birna finnist í dag

Grímur Grímsson, sem stýrir rannsókn lögreglunnar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, sem hefur verið saknað í heila viku, kveðst vongóður um að umfangsmikil leit sem hófst í morgun og standa mun í allan dag skili því að Birna finnist.

Leitin að Birnu: Svæði útilokuð sem eru ófær Kia Rio

Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Ráðist var í skipulag og útreikninga í gær til að útiloka ákveðin svæði frá leitinni. Fjórar klukkustundir eru óútskýrðar í ferðum rauða Kia Rio bílsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×