Innlent

Björgunarsveitir sækja örmagna ferðamann á hálendið

Bjarki Ármannsson skrifar
Maðurinn er staddur í Þjófadölum á hálendinu.
Maðurinn er staddur í Þjófadölum á hálendinu. Vísir/Loftmyndir
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar af bæði Suður- og Norðurlandi hafa verið ræstar út til að sækja örmagna ferðamann í Þjófadali vestan við Hveravelli.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg eru færð og aðstæður á hálendinu með erfiðara móti og var því ákveðið að sækja að staðnum úr tveimur áttum.

Óskað var eftir aðstoð vegna mannsins eldsnemma í morgun. Björgunarsveitir eru komnar áleiðis en ekki liggur fyrir hvenær þær munu komast á staðinn og flytja manninn til byggða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×