Innlent

Björgunarsveitir önnum kafnar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vísir / Atli Páll Hafsteinsson
Umferð á landinu öllu hefur gengið afar hægt fyrir sig í dag og mikið hefur verið um umferðarteppur.  Þá eru miklar annir hjá björgunarsveitum víða um land vegna óveðurs  sem gengur nú yfir landið. 

Umferðin gekk hvað verst í Kópavogi í morgun og eitthvað var um minniháttar árekstra. Að sögn lögreglu var fólk víða í vandræðum í brekkum og fáförnum götum enda flestir enn á vanbúnum bílum.  Dæmi eru um að fólk verið um tvær klukkustundir að komast leiðar sinnar víða í bæjarfélaginu en mokstur hófst ekki fyrr en um klukkan hálf átta í morgun.  Nú er unnið er að mokstri á stofnbrautum og í brekkum en mokstur í íbúðagötum hefst síðar í dag.

Þá urðu einhverjar tafir á Sæbraut eftir að reykur kom upp í hjólabúnaði strætisvagns við Skútuvog og var slökkvilið kallað á staðinn. Þá var slökkvilið jafnframt kallað út eftir að eldur kviknaði í bifreið við Höfðabakka um klukkan hálf átta í morgun. Að sögn lögreglu stóð bíllinn í ljósum logum en engin slys urðu á fólki. Slökkvistarf gekk vel fyrir sig.

mynd/g.ingi jónsson
Veðrið sem gengur nú yfir landið er einna verst á Austfjörðum en þrjár björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á svæðinu í morgun. Björgunarsveitin Hérað á Egilsstöðum ferjaði um 30 manns til Egilsstaða eftir að rúta með starfsfólki Alcoa fór útaf í Fagradal. Engin meiðsl urðu á fólki en mikil hálka er á veginum um dalinn. Á Seyðisfirði fauk hluti af gafli húss í bænum og var björgunarsveit kölluð út og festi það sem eftir var af gaflinum og lokaði gatinu sem þar hafði myndast.

Hálka og hálkublettir eru víðast hvar á landinu en greiðfært er á suðausturlandi. Ófært er á Víkurskarði og hafa björgunarsveitir verið þar að störfum í morgun eftir að rúta og póstbíll fóru út af veginum. Lokað er fyrir umferð um víkurskarð og unnið er að því að opna fyrir umferð. Þá er þungfært og skafrenningur á Breiðdalsheiði en Öxi er ófær. 

Veðurhorfur á landinu:

Norðvestan 18-25 m/s og snjókoma eða él á N- og A-landi, hvassast á annesjum, en annars yfirleitt mun hægari og dálítil él. Dregur smám saman úr vindi og ofankomu í dag. Norðvestan 10-15 og él NA-til í kvöld, en annars hæg breytileg átt og bjart með köflum. Vaxandi austanátt og þykknar upp í nótt, 8-15 og slydda eða rigning S-lands undir morgun. Austan 8-15 og slydda eða snjókoma norðantil á landinu eftir hádegi á morgun, en hægari vindur og rigning með köflum fyrir sunnan. Hiti víða kringum frostmark, en hiti 1 til 6 stig við suður- og suðvestur ströndina á morgun.

vísir/vilhelm
Fyrsti snjór vetrarins féll í nótt í Garðabæ eins og víðar á landinu. Nemendur Sjálandsskóla í Garðabæ kunnu vel að meta það og var mikið fjör og gleði í frímínútum.vísir/óskar birgisson

Tengdar fréttir

Snjór og hálka á götum Reykjavíkur

Hálka, snjóþekja og óveður er víðast hvar á norðausturströndinni. Ökumenn eru hvattir til að fara ekki í umferðina á lélegum dekkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×