Innlent

Björgunarsveitir koma fólki til bjargar á Holtavörðuheiði

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá kafaldsbyl á Holtavörðuheiði.
Frá kafaldsbyl á Holtavörðuheiði. STEINGRÍMUR ÞÓRÐARSON
Björgunarsveitir af Norðurlandi og af Vesturlandi eru nú að aðstoða fólk í þónokkkrum föstum bílum á Holtavörðuheiði, í slæmu veðri og þar er allt kolófært. Norðansveitirnar voru kallaðar út upp úr miðnætti og hinar sveitirnar undir morgun.

Fréttastofu er ekki kunnugt um slys í þessum tilvikum og ekki er nánar vitað um líðan fólksins í bílunum. Fólk sem ætlar að vera á faraldsfæti í dag er beðið að athuga veðurspá og færð á vegum áður en það heldur af stað.

Á vef Vegagerðinnar segir:

Hálka er á Höfuðborgarsvæðinu og hálka og skafrenningur á Sandskeiði, Hellisheiði og Lyngdalsheiði og þæfingsfærð á Mosfellsheiði. Hálka er mjög víða á Suðurlandi. 

Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum og ófært á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Mjög hvasst er á sunnanverðu Snæfellsnesi. 

Það er snjóþekja eða hálka á sunnanverðum Vestfjörðum og skafrenningur á fjallvegum. Ófært er á Klettshálsi og Hjallahálsi. Einnig er ófært á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum og slæmt veður. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi á Drangsnesvegi og á Innstrandavegi.  

Á Norðurlandi vestra er snjóþekja eða hálka á vegum og lokað yfir Þverárfjall. Þæfingsfærð er í Skagafirði og á Siglufjarðarvegi að Ketilási. Verið er að kanna ástand á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi m.t.t. snjóflóðahættu. Norðaustanlands er hálka eða snjóþekja og töluverð snjókoma á Melrakkssléttu og Langanesi. Þungfært er í Hófaskarði. 

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og hálka eða hálkublettir með Suðausturströndinni frá Höfn og áfram suður. 




500 tonn af snjó

Þá er Siglufjarðarvegur enn ófær eftir að stórt snjóflóð féll á hann udir kvöld í gær, skammt vestan við Strákagöng. Í gærkvöldi féll svo stórt flóð á veginn um Ólafsfjarðarmúla og lokaði honum og Súðavíkurhlíð var svo lokað á miðnætti vegna snjóflóðahættu og féll þar flóð í nótt.

Flóðin á Siglufjarðarvegi og í Ólafsfjarðarmúla mælast 2,5 stig, sem þýðir að 100 til 500 tonn af snjó hafi fallið fram. Slík flóð geta hæglega kaffært heilu bílana og valdið tjóni á mannvirkjum en engin mun hafa verið á ferð á þessum slóðum þegar flóðin féllu.

Aðstæður til að opna vegina á ný verða kannaðar í birtingu. Veðurstofan segir að töluverð snjóflóðahætta sé á utanverðum Tröllaskaga, norðanverðum Vestfjörðum og nokkur hætta á Austfjörðum, en áfram er spáð snjókomu og skafrenningi á þessum slóðum næstu daga.

Gul viðvörun er í gildi fyrir allt landið.Veðurstofan
Allt landið gult

Veðurstofan spáir hvassviðri eðs stormi um allt land í dag og víða snjókomu og skafrenningi. Gul viðvörun er í gildi fyrir allt landið og segir Veðurstofan útlit sé fyrir slæmt ferðaveður, annað hvort í stífum vindi með ofankomu eða vegna varasamra vindstrengja.

Fólk er því hvatt til að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er í ferðir um þjóðvegina. Á þetta við bæði um fjallvegi og á láglendi.

Þegar líður á daginn má búast við að vindhviður geti farið upp í allt á 40 metra á sekúndu suðaustanlands, einkum í Öræfum. Spáin er áfram slæm næstu daga þannig að búast má við að færð spillist víða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×