Innlent

Björgunarsveitir kallaðar út vegna vegfarenda í vandræðum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hálka er víða um land.
Hálka er víða um land. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir hafa sinnt nokkrum verkefnum það sem af er sólarhringnum. Það sem af er degi hafa því verið sjö útköll björgunarsveita vegna færðar á vegum, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.

Skagfirðingasveit á Sauðárkróki aðstoðaði í nótt fólk sem hafði fest bíl á Þverárfjalli og snemma í morgun fóru björgunarsveitarmenn frá Siglufirði til aðstoðar vegfarendum sem voru fastir í Héðinsfirði. Björgunarsveitarmenn frá Siglufirði og Ólafsfirði liðsinntu einnig bílstjórum tveggja annarra bifreiða á svipuðum slóðum síðar um morguninn.

Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi aðstoðaði vegfarendur sem misstu bíl út af í Helgafellssveit og annan á Vatnaleið. Rétt fyrir hádegi fóru Súlur á Akureyri til aðstoðar vegfarenda á leið í Hlíðarfjall sem hafði misst bíl sinn út af vegna hálku.

„Slysavarnafélagið Landsbjörg vill benda vegfarendum á að reiknað má með mikill hálku á vegum víða um land næsta sólarhringanna og ökumenn eru hvattir til að sýna fyllstu aðgætni við akstur og kynna sér vel aðstæður,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×